Vinnur þú að verkefni innan örverufræði, dýraheilsu eða dýraverndar sem þjónar hagsmunum allra Norðurlanda? Norræni vinnuhópurinn um örverufræði, dýraheilsu og dýravernd (NMDD) styrkir norræn samstarfsverkefni á þessum sviðum.
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
Vinnuhópurinn styrkir verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Hópurinn vinnur að sjálfbærri meðferð úrgangs á Norðurlöndum og í Evrópu. Meginmarkmiðið er að lágmarka umhverfisáhrif úrgangs frá vistferilssjónarmiði.
Námsferðastyrkir dansk-færeyska félagsins eru auglýstir í Danmörku og Færeyjum einu sinni á ári.
Styrkirnir eru tveir, 10.000 danskra krónur hvor. Annar styrkurinn er ætlaður til námsferðar til Færeyja og hinn til námsferðar til Danmerkur, fyrir einstaklinga á aldrinum 18 til 30 ára. Markmið námsferðarinnar verður að vera í samræmi við markmið Dansk-færeyska menningarsjóðins.
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.
Mannaskiptaáætlunin fyrir atvinnulíf styrkir starfsmenn í atvinnulífinu og iðnaði til námsheimsókna og þjálfunar í öðru ríki, auk þess sem tækifæri gefst til eftirmenntunar og tengslmyndunar. Markmið áætlunarinnar er að styrkja og efla efnahagslegt samstarf, frumkvöðla, svæðisbundið samstarf og nýsköpunartækifæri. Áætlunin er til fimm ára, 2009 til 2013, henni er stjórnað af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi.
Markmið sjóðsins er að styrkja og efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja með því að taka þátt í fjármögnun undirbúningskannana, sem stuðla að því að efla alþjóðavæðingu norrænna fyrirtækja. Nopef fjármagnar undirbúningsrannsóknir lítilla og meðalstórra norrænna fyrirtækja áður en þau hefja starfsemi í löndum utan ESB og EFTA.
NDF styrkir verkefni sem fjalla um loftslagsbreytingar í láglaunalöndum.
Styrkir NDF eru ætlaðir til að fjármagna verkefni sem fjalla um aðlögun og skilvirkar aðgerðir tengdar loftslagsbreytingum. NDF styrkir eru einkanlega veittir til að fjármagna tækniaðstoð, s.s. ráðgjafaþjónustu, til fjárfestinga í vörum, vinnu, þjónustu og til að koma til móts við annan kostnað sem tengist tækniaðstoð.
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
Norræni samstarfsvettvangurinn um landbúnaðarrannsóknir setur af stað og fjármagnar norræn gæðarannsóknarverkefni á sviði landbúnaðar. Tekið er á móti umsóknum um verkefnisstyrki sem tengjast rannsóknavirkni svo sem til námstefna og tengslanetamyndunar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að þátttakendur í verkefnum séu frá þremur norrænu ríkjunum hið minnsta.
Vinnuhópur um sjálfbæra neyslu og framleiðslu (HKP) er vinnuhópur sem heyrir undir Norrænu ráðráðherranefndina um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Vinnuhópurinn er þverfaglegur samstarfsvettvangur umhverfis-, atvinnu- og neytendageiranna. Meginmarkmiðið er að neysla og framleiðsla fari fram á þann hátt að það bæti umhverfis- og heilbrigðisástand, samhliða því að nýting auðlinda sé skilvirk og sjálfbær.
Umhverfis- og efnahagshópur Norrænu ráðherranefndarinnar (MEG) er þverfaglegur hópur sem starfar í umboði umhverfis- og efnahagssviðs Norrænu ráðherranefndarinnar. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins.
Meginmarkmið hópsins er að stuðla að efnahagsþróun sem byggir á sjálfbærum framleiðslu- og neyslumynstrum.
Norræni efnavöruhópurinn (NGK) er vinnuhópur á vegum Norrænu ráðheranefndarinnar um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins. Meginmarkmið hópsins er að lágmarka neikvæð heilbrigðis- og umhverfisáhrif hættulegra efna í vörum, losun og úrgangi.
Markmiðið með samstarfsáætlun Norðurlanda og Rússlands um æðri menntun og rannsóknir er að stuðla að fjölbreyttu samstarfi á sviði menntunar og rannsókna, til að efla sjálfbæra, félagslega og efnahagslega þróun í Rússlandi og á Norðurlöndum.
Vinnuumhverfisnefndin styrkir verkefni, sem miða að því að styrkja samstarf milli Norðurlandanna á vinnuumhverfissviðinu. Verkefni sem tengjast því hvernig bæta má andlegar, líkamlegar og félagslegar aðstæður á vinnustöðum, auka sjálfbæra nýtingu þeirra auðlinda sem felast í starfmanninum sjálfum, auka jafnrétti og jafnræði og þróa Norðurlöndin sem áhugavert og laðandi starfssvæði.
Vinnuhópur um lifandi auðlindir jarðar (TEG) er vinnuhópur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar norræn verkefni á sínu sviði og eru verkefnin skilgreind árlega.
Meginmarkmið með setningu vinnuhópsins er að sjá til þess að farið sé með náttúruna á sjálfbæran hátt með það að markmiði að vernda náttúruna og menningarlandslag, þannig að vistkerfi jarðar verði við haldið. Vinnuhópurinn hefur breiðan starfsgrundvöll sem nær til verndunar og sjálfbærrar nýtingar á náttúrunni, liffræðilegs fjölbreytileika, landslags, menningarverðmæta, menningarumhverfis og útivistar. Starfið nær einnig til tengslanna á milli loftslagsbreytinga og líffræðilegs fjölbreytileika, landslags og menningarumhverfis.
Loftslags- og lofthópurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki til norrænna verkefna, sem vinna að markmiðum og forgangsatriðum sem sett eru í Norrænu áætluninni um umhverfismál og forgangsatriði sem sett eru af loftslags- og lofthópnum 2014. Loftslags- og lofthópurinn (KoL) vinnur að því að takmarka og koma í veg fyrir alvarlegar loftslagsbreytingar og loftslagsmengun þvert á landamæri, auk þess að stuðla að því að loftmengun skaði hvorki umhverfið né heilsu mannfólksins.
Markmkiðið áætlunarinnar er að þróa og endurnýja norrænt lista- og menningarsamstarf. Í áætluninni er lögð mikil áhersla á miðlun og kynningu, jafnt til almennings og milli listamanna og þeirra sem láta sig menningu varða. Áætlunin skiptist í undiráætlanir: Áætlun um færniþróun, gagnrýni og þekkingarmiðlun og áætlun um framleiðslumiðaða starfsemi og kynningar. Jafnt stofnanir og einstaklingar geta sótt um styrki í áætlunina.