Document Actions

Önnur lönd

Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.
Norræn jaðarsvæði
Áætlunin er skipulögð til þess að takast á við þau sérstöku úrlausnarefni sem norræn jaðarsvæði þufa að takast á við, eins og t.d. dreifða byggð á landsbyggðinni. Nýsköpun, umhverfismál, aðgengi og tenging milli dreifbýlis og þéttbýlis eru forgangsmál. NPP 2007-2013 er sérstaklega ætlað að leggja áherslu á fjölþjóðlegt samstaf um þróun nýrra, nýstárlegra vara og þjónustu. Verkefnin skulu, með miðlun reynslu og uppbyggingu tengslaneta, hafa í för með sér raunverulegar niðurstöður sem skapa virðisauka á þeim svæðum sem taka þátt.
Eystrasaltsáætlunin
Eystrasaltsáætlunin (The Baltic Sea Region Programme 2007-2013) er ein af mikilvægum áætlunum ESB um svæðasamstarf. Fjárhagsáætlun áætlunarinnar er 236,6 milljónir evra og er hún styrkt af þróunarsjóði ESB, grannsvæðaáætlun ESB (European Neighbourhood and Partnership Instrument - ENPI) og norska ríkinu. Þar að auki kemur fjármagn frá svæðunum.
Norðursjávaráætlunin
Norðursjávaráætlunin vinnur með nýjustu aðferðir á sviði byggðaþróunar í fjölþjóðlegum verkefnum. Meginmarkmið áætlunarinnar er að víkka ramma svæðasamstarfs og leggja áherslu á öflug gæðaverkefni á sviði nýsköpunar, umhverfismála, aðgengi, og sjálfbærra og samkeppnishæfra byggða. Áætlunin hefur fengið 140 milljónir evra frá ESB. Að auki koma 9,6 milljónir evra frá norskum samstarfsaðilum.