- Info
Rússland
-
Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu
-
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.
-
NORDBUK: Sækja um styrk
-
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) veitir styrki til félagasamstarfs og verkefna á sviði æskulýðsmála.
-
Sækja um styrk til Samstarfsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin
-
Samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin úthlutar árlega um 8 milljónum danskra króna. Sækja má um styrki til Samstarfsáætlunar um norðurskautssvæðin til verkefna sem unnin eru á Norðuskautssvæðinu.
-
Sækja um styrki frá Norrænu velferðarmiðstöðinni(NVC)
-
Markmiðið með styrkjaáætlun NVC er að efla norrænt samstarf milli stofnana sem fara með málefni fatlaðra. Styrkir eru veittir til verkefna sem fela í sér samstarf milli norræna stofnana sem fara með málefni fatlaðra og sambærilegra stofnana í grannríkjunum þ.e. í Eistlandi, Lettlandi, Litháen og í Norðvestur-Rússlandi.
-
Norrænt-rússneskt samstarf um menntun og rannsóknir
-
Norræna-rússneska áætlunin veitir styrki til samstarfs og myndunar tengslaneta milli norrænna og norðvestur-rússneskra menntastofnana.. Enn er verið að semja um fyrirkomulag áætlunarinnar milli Norrænu ráðherranefndarinnar og rússneskra stjórnvalda, en auglýst hefur verið eftir umsóknum um undirbúningsstyrki. Samtals eru 2.9 milljónir danskra króna til úthlutunar, umsóknarfrestur rann út 15. desember 2009.
-
Kolarctic ENPI CBC
-
Í áætluninni er lögð megináhersla á þrjú svið; efnahags- og félagslega þróun, sameiginleg viðfangsefni og landamærasamstarf og samstarf alþýðu og uppbyggingu sjálfsmyndar. Á öllum sviðunum er sérstök áhersala viðfangsefni sem beina sjónum að konum og ungmennum.
