Document Actions

Norrænt vinabæjasamstarf

Markmið vinabæjasamstarfs er að auðvelda sveitarfélögum og íbúum þeirra að eiga samstarf, miðla reynslu, heimsækja hvert annað og ræða sameiginleg hagsmunamál. Samtök norrænu félaganna (FNF) og deildir þeirra eru drifkraftur og ástæða þess að vinabæjasamstarfið hefur orðið lifandi hluti norræna samstarfsins.

Vinabæjasamstarfið í dag

Mikill hluti vinabæjasamstarfsins verður til og er unnið í samstarfi sveitarfélaga og staðbundinna deilda Sambands norrænu félaganna (FNF). Sveitarfélögin leggja venjulega til fjármagn og félögin sjálfboðaliða.

Vinabæjasamstarf er sérstakt samstarf tveggja sveitarfélaga sem hafa ákveðið að hittast, starfa saman og miðla reynslu til hvers annars. Sveitarfélögin ráða sjálf á hvaða sviðum þau starfa saman, en oft gegnir ungmenna-, skóla- og menningarsamstarf mikilvægu hlutverki.

Vinabæjasamstarfið veitir íbúum og félagasamstökum, starfsmönnum sveitarfélaga og embættismönnum tækifæri til að taka þátt í norrænu samsarfi og tengjast persónulegum og faglegum böndum þvert á landamæri, á auðveldan hátt og án mikilla fjárútláta.

Sveitarfélög eiga í dag mikið og gott vinabæjasamstarf sem tengir bæi og sveitarfélög á Norðurlöndum og býður upp á náin tengsl milli stjórnvalda og íbúa sveitarfélaganna.

Samkvæmt skýrslu um vinabæjasamstarfið, sem gerð var af Sambandi norrænu félaganna er það sá ávinningur sem verður til við miðlun reynslu og þekkingar, tengsl og samkennd sem drífur samstarfið áfram.

Að taka þátt í norrænu vinabæjasamstarfi

Á heimasíðum Norrænu félaganna er nákvæm lýsing á vinabæjasamstarfi á Norðurlöndum. Þar eru upplýsingar um það sem er á döfinni í 600 vinabæjum á Norðurlöndum og þar hægt er að gerast félagi og taka þátt í samstarfinu.

Í Twinning, verkefni á vegum ESB hefur verið safnað upplýsingum fyrir sveitarfélög sem vilja hefja vinabæjasamstarf. Þar geta sveitarfélög og félög einnig sótt um fjármagn til verkefna innan ramma vinabæjasamstarfsins.

Vinabæir á Norðurlöndum

Einstök sveitarfélög taka oft þátt í stórum norrænum og alþjóðlegum tengslanetum og keðjum vinabæja. Samband norrænu félaganna í Svíþjóð hefur gert lista yfir norræna vinabæi (2009) og vinabæjakeðjur.

Sveriges Kommuner och Landsting (SKL) er með lista yfir alþjóðlegt vinabæjasamstarf, þar sem vinabæir á Norðurlöndum eru einnig taldir með. Kommunernas Landsförening i Danmark (KL) hefur einnig gert yfirlit sem raðað er upp eftir dönskum vinabæjum.

Vinabæjasamstarfið færist í aukana

Vinabæjahugmyndin kom fram árið 1924 þegar Helge Bruhn, formaður norræna félagsins í Danmörku vildi stofna staðbundnar nefndir sem áttu að hafa það verkefni að eiga samstarf við samsvarandi nefndir í öðrum norrænum ríkjum.

Fyrstu vinabæjatengslin urðu til milli sveitarfélaganna Uddevalla í Svíþjóð og Thisted í Danmörku árið 1939. Seinna tóku fleiri norrænir bæir þátt í þessari vinabæjakeðju.

Vinabæjasamstarfið stækkaði síðan fyrir alvöru í tengslum við stuðning norrænu ríkjanna við Finnland í finnska vetrarastríðinu í lok þriðja áratugs og upphafi þess fjórða á síðustu öld.

Segja má að norræna vinabæjahreyfingin eigi annars vegar upphaf sitt í einlægu almennu frumkvæði og hins vegar í vilja fólks til þess að aðstoða þá sem áttu um sárt að binda eftir seinni heimsstyrjöld.

Og jafnvel þó vinabæjahugsunin sé í dag ekki sérnorrænt fyrirbrigði, er hún útbreidd, virk og lifandi hugmynd á Norðurlöndum í meira mæli en annars staðar í heiminum.

Tengiliður

Marita Hoydal
Sími: 29692915
Tölvupóstur: