Document Actions

Þátttaka í norrænu samstarfi

Hér eru upplýsingar um hvernig hægt er að taka þátt í og hafa áhrif á norræna samstarfið. Takið þátt í málefnum sem þið hafið áhuga á, sendið athugasemdir, hlustið og látið í ykkur heyra um það hvernig þið viljið að Norðurlöndin verði í framtíðinni.

Takið þátt og hafið áhrif á þróunina

Norðurlöndin eru svæði í fararbroddi í heiminum, svæði sem einkennist af opinni umræðu, lýðræði, velferð og frjálsum markaði. Sumt eins og reynsla, staðir og upplifun er skilgreint sem sérstaklega norrænt en annað sem ekki er það í dag ætti ef til vill að verða það í framtíðinni.

Ástæður fyrir því að taka virkan þátt eru fjölmargar. Hér á eftir er listi yfir nokkrar leiðir til að taka þátt og hafa áhrif á þróunina í norrænu samstarfi.

Vinabæjasamstarf Markmið vinabæjasamstarfs er að auðvelda sveitarfélögum og íbúum þeirra að eiga samstarf, miðla reynslu, heimsækja hvert annað og ræða sameiginleg hagsmunamál.

Norrænu félögin sjá um vinabæjasamstarfið, upplýsingaskrifstofur eru í Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finnland, á Íslandi, í Færeyjum og á Álandseyjum. Þeir sem eru félagar í Norræna félaginu hafa áhrif á grasrótarsamstarfið í gegnum félagið sem tekur þátt í opinberri umræðu, er vettvangur umræðna og stuðlar að auknu samstarfi þvert á landamæri.

Fylgstu með

Í vefritinu Analys Norden má fá yfirsýn og skilning á pólitískri umræðu á Norðurlöndum eins og hún birtist í núinu og auk þess er hægt að taka þátt í umræðu um efni greina sem birtar eru í ritinu.

Fylgist með á döfinni hjá Norden.org þar eru upplýsingar um norrænar nám- og ráðstefnur um ýmis mál, menningarviðburði og aðra mikilvæga fundi í norrænu samstarfi.

Á facebook síðu Norrænnu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs er hægt að fylgjast með fréttum og viðburðum og taka þátt í umræðum. Fylgstu með og miðlaðu einnig fréttum frá twittersíðu Norðurlandaráðs.

Á vefsíðunni Norden.org eru einnig krækjur á facebook síður mikilvægra stofnana, samtaka og verkefna innan norræna samstarfsins.

Mikið norrænt samstarf er um rannsóknir, samstarfsmálefni, samþættingarmál, afnám stjórnsýsluhindrana, neytendamál og réttindi borgaranna o.fl. Skoðið vefsíður okkar um stofnanir, vinnuhópa, samstarfsaðila og upplýisngaskrifstofur og - þjónustur sem vinna að norrænum málefnum.

Sækja um styrki til norrænna verkefna

Ef unnið er að menningarverkefni og leitað eftir styrkjum leggjum við til að leitin hefjist hjá Norræna menningarsjóðnum. Sjóðurinn styrkir menningarsamstarf milli Norðurlandanna og úthlutar árlega 29 milljónum danskra króna til verkefna.

Hjá styrkjaáætluninni Nordplus geta lögaðilar, fulltrúar stofnana og samtaka, sótt um styrki til verkefna sem unnin eru í samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og miða að þróun menningar, tungumála og menntunar. Nánari upplýsingar um skilyrði sem sett eru fyrir styrkúthlutunum eru á vefsíðu Norræna menningarsjóðsins.

Verið velkomin að skoða lista okkar yfir allar styrkjaáætlanir sem fjármagnaðar eru af Norrænu ráðherranefndinni og tengjast menntun og rannsóknum.

Ungt fólk á Norðurlöndum

Ungt fólk hefur mikilvægu hlutverki að gegna í norræna samstarfinu og það fær fjölda tækifæra til að koma skoðunum sínum á framfæri. Norðurlandaráð æskunnar (UNR) er ein af þeim stofnunum sem starfar pólitískt þvert á landamæri á Norðurlöndum.

Skoðið störfin í norræna samstarfinu. Nordjobb er upplýsingaþjónusta og vefsíða með upplýsingum um störf á Norðurlöndum, sumarstörf og fleira fyrir ungt fólk á aldrinum 18- 28 ára.

Tengiliður

Marita Hoydal
Sími: 29692915
Tölvupóstur: