Um upplýsingaþjónustuna Halló Norðurlönd
Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Starfið felst í upplýsingagjöf til einstaklinga og fyrirtækja og auðveldar þeim þannig, meðal annars, að flytja, starfa, stunda nám í norrænu grannríki.
Halló Norðurlöndog starfsmenn skrifstofunnareru ábyrgir fyrir upplýsingum um flutning, nám og störf sem fram koma á ”Norden för dig” og á vefsíðunni norden.org. Vefsíður á norden.org koma í stað þeirra upplýsinga sem áður voru á vefsíðunni hallonorden.org, en starfsemi upplýsingaskrifstofunnar Halló Norðurlönd er óbreytt.
Ef einstaklingur finnur ekki upplýsingar sem hann leitar að um flutning, nám og störf á vefsíðunni norden.org, er hægt að senda fyrirspurn til Halló Norðurlanda. Á hverri síðu er krækja í fyrirspurnareyðublað. Senda má fyrirspurn á sænsku, dönsku, norsku, finnsku eða íslensku.
Á norden.org eru einnig upplýsingar um allar skrifstofur Halló Norden.
