Document Actions

Vinna á Íslandi

Hér má finna upplýsingar um atvinnuleit á Íslandi, atvinnuleyfi, atvinnuleysistrygginar og annað nytsamlegt fyrir þá sem leita að vinnu á Íslandi eða starfa þar nú þegar.
Atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi
Ríkisborgarar norrænu landanna þurfa ekki atvinnu- og dvalarleyfi til þess að dvelja á Íslandi en ríkisborgarar annarra landa þurfa að kynna sér vel þær reglur sem gilda. Hér má finna upplýsingar um atvinnu- og dvalarleyfi ríkisborgara frá löndum innan og utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Atvinnuleit á Íslandi
Hér má finna upplýsingar um vinnumiðlanir og möguleikann á atvinnuleysisbótum meðan á atvinnuleit stendur. Ýmislegt þarf að hafa í huga við atvinnuleit á Íslandi, til að mynda getur verið góð hugmynd að kynna sér reglur varðandi atvinnutryggingar.
Tekjur í atvinnuleysi á Íslandi
Mikilvægt er að kynna sér reglur um tekjur í atvinnuleysi við flutninga milli norræna ríkja. Á Íslandi sér Vinnumálastofnun um alla umsýslu atvinnuleysistrygginga, skráningu, ráðgjöf og eftirlit.
Sjúkradagpeningar á Íslandi
Hér má finna upplýsingar um almennan veikindarétt launþega vegna eigin veikinda og veikinda barna sem og réttindi vegna vinnuslysa og vinnutengdra sjúkdóma. Eins má finna upplýsingar um hverjir eiga rétt á sjúkradagpeningum.
Skattar á Íslandi
Þeir sem starfa á Íslandi þurfa að kynna sér reglur um skattamál, þar á meðal um tvísköttunarsamninga. Hér má finna almennar upplýsingar um skattamál á Íslandi, til dæmis um hvernig sótt er um skattkort, hvernig skattframtal virkar og hverjir eru skattskyldir á Íslandi.
Að vinna í fleiri löndum samtímis
Við vinnu í fleiri löndum samtímis þarf að hafa ákveðin atriði í huga, til að mynda varðandi almannaskráningu, sjúkratryggingar og skattamál.
Stéttarfélög á Íslandi
Stéttarfélög gegna mikilvægu hlutverki á Íslandi og nær allt launafólk er félagsmenn í stéttarfélögum. Ráðlagt er að kynna sér vel starfsemi stéttarfélaga og þá aðstoð sem þau veita.

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.

Vinna á Norðurlöndum

Vinna í Danmörku

Vinna í Svíþjóð

Vinna í Noregi

Vinna í Finnlandi

Vinna á Íslandi

Vinna á Álandseyjum

Vinna í Færeyjum

Meira um Ísland

Flytja til Íslands

Vinna á Íslandi

Nám á Íslandi