Document Actions

Að vinna í fleiri löndum samtímis

Við vinnu í fleiri löndum samtímis þarf að hafa ákveðin atriði í huga, til að mynda varðandi almannaskráningu, sjúkratryggingar og skattamál.

Fly
Ljósmyndari
Eivind Sætre

Nauðsynlegt er að kynna sér vel reglur um almannaskráningu í þeim löndum sem við á þar sem engin ein regla á við um þegar unnið er í fleiri en einu landi. Hafa ber í huga að aðeins er hægt að vera skráður með lögheimili á einum stað. Almenna reglan er sú að þegar starfað er samtímis í tveimur löndum innan Norðurlanda er rétturinn til almannatrygginga bundinn við búsetuland.

Tímabundið starf í öðru norrænu landi hjá íslenskum vinnuveitanda

Launþegi sem sendur er af vinnuveitenda til starfa í öðru norrrænu landi í takmarkaðan tíma á kostnað vinnuveitanda nýtur áfram almannatrygginga í heimalandinu eða landi vinnuveitandans.

Því til sönnunar skal landið sem launþegi er sendur frá gefa út eyðublaðið E-101. Þannig er komist hjá því að greiða tryggingagjöld í landinu þar sem er starfað tímabundið og vinnuveitandinn heldur áfram að greiða tryggingjagjöld atvinnurekanda í heimalandinu.

Námsmaður sem á lögheimili á Íslandi og dvelst erlendis við nám er áfram tryggður meðan á námi stendur ef hann er ekki tryggður í almannatryggingum námslandsins.

Taki námsmaður upp fasta búsetu eða launavinnu í námslandinu ber honum að tilkynna slíkt til Þjóðskrár og fellur hann þá ekki lengur undir íslenska tryggingavernd.

Finna má frekari upplýsingar um tryggingamál á Norðulöndum á samnorrænnu vefgáttinni um almannatryggingar, Nordsoc.

Við flutning

Búseta eða lögheimili á Íslandi leiðir ekki sjálfkrafa til bótarétta úr almanna- og atvinnuleysistryggingasjóði. Engu að síður geta allir öðlast rétt til greiðslna og almanna- og atvinnuleysistrygginga sem búsettir eru á Íslandi séu ákveðin skilyrði uppfyllt.

Við flutning til eða frá Íslandi ber að tilkynna flutninginn til Þjóðskrár. Tryggingastofnun ríkisins (TR) sem sér um almannatryggingar á Íslandi ásamt Sjúkratryggingum Íslands nýtir sér lögheimilisskrá Þjóðskrár til að afla upplýsinga um hvort einstaklingar eru tryggðir á Íslandi.

Við flutning til Íslands ber að senda tilkynningarblað til TR ásamt vottorðum um tryggingatímabil frá þeim erlendu tryggingastofnunum sem við á. Hægt er að nálgast tilkynningarblaðið á heimasíðu TR og finna má frekari upplýsingar á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands.

Skattskylda vegna vinnu í öðru norrænu landi

Einstaklingur með lögheimili á Íslandi er samkvæmt 1. gr. tekjuskattslaga með fulla skattskyldu þar.

Ef farið er til vinnu í öðru norrænu landi fyrir þarlendan aðila á vinnulandið samkvæmt ákvæði í tvísköttunarsamningi milli Norðurlanda þó rétt á að skattleggja þær tekjur sem aflað er þar. Það felur í sér að launþegi þarf yfirleitt að skila inn tveimur framtölum, framtali í vinnulandinu vegna launa sem aflað er þar og framtali á Íslandi þar sem erlendu launin koma fram.

Erlendu tekjurnar eru ekki skattlagðar aftur, en tekið er tillit til þeirra í álagningu og er íslenskur persónuafsláttur hlutfallaður miðað við hlut erlendu teknanna í heildartekjunum.

Nánari upplýsingar má finna á norræna skattavefnum Nordisk eTax.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Samningur varðandi tvísköttun á tekjum og eignum (Samningur)

    Samningur og bókun milli Norðurlanda til að komast hjá tvísköttun að því er varðar skatta á tekjur og eignir frá 23. september 1996 með bókunum um breytingar frá 6. október 1997 og 4. apríl 2008.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.