Document Actions

Atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi

Ríkisborgarar norrænu landanna þurfa ekki atvinnu- og dvalarleyfi til þess að dvelja á Íslandi en ríkisborgarar annarra landa þurfa að kynna sér vel þær reglur sem gilda. Hér má finna upplýsingar um atvinnu- og dvalarleyfi ríkisborgara frá löndum innan og utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).

Åhörare
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Norrænir ríkisborgarar þurfa hvorki að hafa atvinnu- né dvalarleyfi til þess að geta búið og starfað á Norðurlöndum. Aðrar reglur gilda um ríkisborgara frá EES-löndum utan Norðurlanda sem og ríkisborgara frá löndum utan EES.

Ríkisborgarar landa innan EES-svæðisins geta dvalið á Íslandi án sérstaks leyfis í allt að þrjá mánuði frá komu til landsins.  Sé viðkomandi í atvinnuleit getur hann dvalið á Íslandi í allt að sex mánuði.  Eftir þann tíma bera að skrá sig hjá Þjóðskrá.

Ríkisborgarar utan EES sem vilja flytja til Íslands til að vinna þar þurfa að fá atvinnuleyfi. Eins þurfa þeir dvalarleyfi til þess að geta dvalist löglega á Íslandi. Dvalarleyfin eru flokkuð eftir ástæðu dvalarinnar.

Útlendingastofnun sér um úthlutun dvalarleyfa og vegabréfsáritana á Íslandi. Umsóknum ber að skila til útlendingastofnunar á höfuðborgasvæðinu, en á landsbyggðinni er það sýslumaður í viðkomandi umdæmi sem fjallar um þessi mál.

Frekari upplýsingar um dvalar– og atvinnuleyfi á Íslandi má fá hjá Útlendingastofnun og hjá Fjölmenningarsetri Vestfjarða.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Samningur um sameiginlegan norrænan vinnumarkað (Samningur)

    Samningur um sameiginlegan norrænan vinnumarkað undirritaður 6. mars 1982, gekk í gildi 1. ágúst 1983. Kemur í stað fyrri samkomulags frá 22. maí 1954.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.