Atvinnuleit á Íslandi
Ýmislegt þarf að hafa í huga við atvinnuleit á Íslandi, til að mynda getur verið góð hugmynd að kynna sér reglur varðandi atvinnutryggingar. Hér að neðan má finna upplýsingar um vinnumiðlanir og möguleikann á atvinnuleysisbótum meðan á atvinnuleit stendur.
Vinnumiðlanir
Atvinnulausir einstaklingar frá Norðurlöndum sem koma til Íslands í vinnuleit þurfa að fá íslenska kennitölu hjá Þjóðskrá Íslands til þess að geta skráð sig í atvinnuleit á næstu vinnumiðlun Vinnumálastofnunar. Heimilisföng vinnumiðlana má finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Auk þess að miðla störfum, veita vinnumiðlanir Vinnumálastofnunar upplýsingar um atvinnuástand og horfur og endurgjaldslausa ráðgjöf um náms- og starfsval og atvinnuleit. Einnig er mögulegt að skrá sig hjá einkareknum atvinnumiðlunum eða hafa beint samband við atvinnurekendur. Eins má oft finna atvinnuauglýsingar í helstu dagblöðum og á netsíðum dagblaðanna.
Heimasíður helstu vinnumiðlana á Íslandi eru eftirfarandi, en listinn er þó ekki tæmandi.
- Vinna.is
- Mannval ráðningarþjónusta
- Capacent
- Job.is
- Hagvangur
- Stúdentamiðlun
- HH ráðgjöf
- Talent ráðningar
- Starfatorg
- Hugtak ráðningar og ráðgjöf
- Atvinna.is
- Hitt húsið
Evrópska vinnumiðlunin EURES
Vinnumálastofnun sér einnig um rekstur samevrópsku vinnumiðluninnar EURES (EURopean Employment Services). EURES er samstarf um atvinnuleit og miðlun starfa milli ríkja Evrópska Efnahagssvæðisins (EES) og er rekin á vegum framkæmdastjórnar EES.
Markmið EURES er að auðvelda vinnandi fólki að flytjast milli landa EES-svæðisins og stuðla þannig að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar innan svæðisins.
EURES-ráðgjafar leiðbeina fólki um atvinnuleit erlendis, veita upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði innan svæðisins auk þess að aðstoða atvinnurekendur sem vilja ráða til sín starfsmenn frá öðrum EES-ríkum.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu EURES, en þar er að finna mikið af upplýsingum fyrir þá sem eru í atvinnuleit og hyggja á flutning innan Evrópu.
Nordjobb
Norrænir ríkisborgarar eða ríkisborgarar í Evrópusambandinu sem eru búsettir á Norðurlöndum og eru á aldrinum 18 – 28 ára geta sótt um Nordjobb. Nordjobb stuðlar að auknum hreyfanlega fyrir ungt fólk innan Norðurlanda og miðlar atvinnu og húsnæði á Norðurlöndum. Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Nordjobb.
Atvinnuleysisbætur meðan á atvinnuleit stendur
Öll Norðurlöndin eiga aðild að EES-samningnum sem þýðir að einstaklingur getur farið til annars norræns lands í allt að þrjá mánuði í atvinnuleit og samt haldið rétti sínum til atvinnuleysisbóta frá heimalandinu. Til þess að þetta sé mögulegt þarf að sækja um vottorðið E-303 hjá Vinnumálastofnum.
Til að geta sótt um vottorðið E-303 þarf að uppfylla ákveðin skilyrði, meðal annars að vera atvinnulaus að fullu, að vera skráður í atvinnuleit og að hafa móttekið atvinnuleysisbætur í heimalandinu í að minnsta kosti fjórar vikur fyrir brottför. Sækja þarf um vottorðið að minnsta kosti þremur vikum fyrir brottför.
Ef umsóknin er samþykkt á hinn atvinnulausi rétt á atvinnuleysisbótum frá heimalandi sínu í þrjá mánuði meðan hann leitar að starfi í öðru norrænu landi.
Til þess að geta þegið dagpeninga allt vottorðstímabilið, þarf að tilkynna sig hjá svæðisvinnumiðlun innan sjö daga frá gildistöku vottorðsins. Ef einstaklingur skráir sig eftir þann tíma þýðir það að viðkomandi getur í fyrsta lagi fengið dagpeninga frá skráningardegi. Reglur búsetulandsins gilda um skráningu hjá vinnumiðlun og greiðsludaga atvinnuleysisbóta.
Umsækjandi verður að mæta reglulega til vinnumiðlunar og láta vita ef hann hefur fengið fullt starf eða hlutastarf.
Að þremur mánuðum liðnum eru ekki lengur greiddar bætur frá heimalandinu og verður að snúa þangað aftur til að halda rétti til bóta. Nauðsynlegt er að snúa aftur til heimalandsins og skrá sig hjá vinnumiðlun þar áður en vottorðstíminn rennur út. Ekki má líða lengri tími milli komu og skráningar en sjö virkir dagar. Tímabilið sem mögulegt er að fá atvinnuleysisbætur í landinu þar sem leitað að atvinnu er ekki hægt að framlengja. Gæta þarf þess þegar snúið er aftur til heimalandsins að afskrá sig frá vinnumiðluninni í norræna landinu.
Frekar upplýsingar og umsóknareyðublað um E-303 vottorð fæst á vef Vinnumálastofnunar.
