Sjúkradagpeningar á Íslandi
Hér má finna upplýsingar um almennan veikindarétt launþega vegna eigin veikinda og veikinda barna sem og réttindi vegna vinnuslysa og vinnutengdra sjúkdóma. Eins má finna upplýsingar um hverjir eiga rétt á sjúkradagpeningum.
Veikindaréttur samkvæmt kjarasamningum
Í lögum er kveðið á um lágmarksveikindarétt launþega sem er tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð. Í kjarasamningum er kveðið nánar á um veikindarétt. Almenna reglan er sú að eftir því sem unnið er lengur hjá sama vinnuveitenda eykst veikindaréttur launafólks. Áunnin réttindi og útfærsla veikindaréttar, svo sem fjöldi veikindadaga, ákvarðast því af lögum og þeim kjarasamningum sem við eiga hverju sinni.
Launþega ber að tilkynna um veikindi sín við fyrsta tækifæri og framvísa læknisvottorði fari atvinnurekandi fram á það. Sé starfsmaður veikur á meðan á orlofi stendur er möguleiki á að viðkomandi eigi rétt á viðbótarorlofi en tilkynna ber um veikindin við fyrsta tækifæri og framvísa læknisvottorði.
Í vinnuslysa- eða atvinnusjúkdómstilfellum sem tengjast vinnu eða ferðum til og frá vinnustað á starfsmaður rétt á launum frá atvinnurekanda fyrir dagvinnu í allt að þrjá mánuði til viðbótar áunnum veikindarétti.
Sé launamaður frá vinnu vegna sjúkdóms eða slyss í lengri tíma en veikindaréttur hans nær á launamaður rétt á greiðslum úr sjúkrasjóði stéttarfélags síns.
Sjúkradagpeningar
Rétt á sjúkradagpeningum eiga allir sem eru sjúkratryggðir samkvæmt þeim skilyrðum sem nefnd eru að ofan. Þeir sem ekki hafa launatekjur í veikindum geta átt rétt á sjúkradagpeningum frá Sjúkratryggingum Íslands séu þeir sjúkratryggðir og uppfylli önnur nauðsynleg skilyrði.
Heimavinnandi og tekjulausir námsmenn geta átt rétt á sjúkradagpeningum. Námsmenn þurfa að skila inn vottorði um að tafir hafi orðið á að námsáfangi náist vegna veikinda.
Veikindi barna
Við veikindi barna yngri en þrettán ára geta foreldrar átt rétt á launuðu leyfi en þær reglur eru breytilegar eftir kjarasamningum. Foreldri getur á rétt á sjúkradagpeningum úr sjúkrasjóði síns stéttarfélags standi veikindi barns lengur en launaréttur foreldris nær. Foreldrar langveikra og fatlaðra barna geta leitað til Tryggingastofnunar ríkisins og sótt um umönnunargreiðslur. Nánari upplýsingar um þær má nálgast á heimasíðu Tryggingastofnun ríkisins.
