Document Actions

Tekjur í atvinnuleysi á Íslandi

Mikilvægt er að kynna sér reglur um tekjur í atvinnuleysi við flutninga milli norræna ríkja. Á Íslandi sér Vinnumálastofnun um alla umsýslu atvinnuleysistrygginga, skráningu, ráðgjöf og eftirlit.

Människor
Ljósmyndari
Image select

Greiðsla atvinnuleysisbóta

Það eru þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar sem sjá um greiðslur atvinnuleysisbóta í nánu samstarfi við Greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Umsókn um atvinnuleysisbætur er skilað inn til þeirrar Þjónustumiðstöðvar Vinnumálastofnunar sem við á, en umsóknin er send þaðan til Greiðslustofu Vinnumálastofnunar sem metur umsóknir og er afgreiðir eftir því sem við á samkvæmt lögum.

Umsókn um atvinnuleysisbætur

Sækja skal um atvinnuleysisbætur til þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á viðkomandi svæði. Mælt er með því að fylla fyrst út rafræna umsókn á vef Vinnumálastofnunar en einnig þarf að mæta á skrifstofu stofnunarinnar til að undirrita umsóknina, skila inn skattkorti og öðrum gögnum sé um er kveðið í rafrænu umsókninni.

Mikilvægt er að hafa í huga að staðfesta þarf atvinnuleit  mánaðarlega frá 20. – 25. hvers mánaðar til að tryggja greiðslur um hver mánaðarmót. Það er hægt að gera á vef Vinnumálastofnunar, símleiðis eða með því að koma við á Þjónustumiðstöð Vinnumálastofnunar.

Atvinnuleysistryggingar eru greiddar fyrsta virka dag hvers mánaðar og er greiðslutímabilið frá 20. degi mánaðarins á undan til 19. dags þess mánaðar sem greitt er út.

Réttur til atvinnuleysisbóta

Til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum frá Íslandi þarf bótaþegi að hafa starfað í að minnsta kosti þrjá mánuði á Íslandi. Gerð er krafa um að einstaklingur sé atvinnulaus, í virkri atvinnuleit og tilbúinn að taka öllum almennum störfum og hvar sem er á landinu. Eins er gerð krafa um að einstaklingurinn sé búsettur hér á landi.

Atvinnuleysisbótaréttindi flutt milli landa

Mögulegt er að flytja atvinnuleysisbótaréttindi milli landa innan Evrópska efnahagssvæðisins (Evrópusambandsríkin, Noregur, Ísland og Lichtenstein) með vottorðinu E-301. Skilyrði til að eiga rétt á vottorði E-301 er að hafa unnið í tryggingaskyldri vinnu sem launþegi. Þeir sem hafa verið sjálfstætt starfandi eða verktakar eiga ekki rétt á E-301. Vinnumálastofnun veitir nánari upplýsingar um það.

Einstaklingar sem hafa áunnið sér rétt til atvinnuleysisbóta á Íslandi einhvern tíma á síðustu fimm árum geta flutt með sér tryggingatímabil eða starfstímabil sem þeir eiga að baki í einhverju hinna Norðurlandanna til Íslands án þess að hafa unnið hér á landi eftir heimkomuna. Skilyrði er að hafa átt rétt til atvinnuleysisbóta á Íslandi fyrir brottför. Þessir einstaklingar eiga að útvega sér E-301.

Atvinnuleysisbætur á meðan leitað er að vinnu erlendis

Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum er mögulegt að halda atvinnuleysisbótum í allt að þrjá mánuði þegar haldið er til norræns lands í atvinnuleit. Við atvinnuleit innan Evrópska efnahagssvæðisins (ESS), þar á meðal á Norðurlöndum, þarf að útvega sér vottorðið E-303. Ekki er mögulegt að dvelja erlendis við atvinnuleit og þiggja atvinnuleysisbætur án E-303 vottorðs.

Enginn atvinnuleysisbótaréttur

Þeir sem eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum gætu átt rétt á félagslegri framfærslu frá sínu sveitarfélagi, uppfylli þeir viss ákveðin og fyrirframgefin skilyrði.

Sveitarfélögum er skylt að veita fjárhagsaðstoð þeim einstaklingum og fjölskyldum sem ekki geta framfleytt sér fjárhagslega.

Nánari upplýsingar um þetta má nálgast vef velferðarráðuneytisins og upplýsingar um sveitarfélög landsins má finna hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Tengt efni

 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.