Atvinnuleit í Danmörku
Eftirfarandi eru upplýsingar um atvinnuleit í Danmörku og hvernig er hægt að fá atvinnuleysisbætur frá heimalandi í þrjá mánuði á meðan leitað er að starfi.
Starfsleit Danmörku
Um alla Danmörku eru vinnumiðlanir þar sem hægt er að sækja um starf. Vinnumiðlanirnar eru einnig á netinu þar sem þær nefnast: jobnet.dk.
Á vefsíðunni er hægt að skrá sig sem atvinnuleitanda, lesa atvinnuauglýsingar og vista ferilskrá.
Nánari upplýsingar um vinnumiðlanir og jobnet eru á vefsíðunni: borger.dk.
Vefsíðan workindenmark.dk er ætluð útlendingum sem leita að starfi í Danmörku, og seasonalwork.dk er ætlað þeim sem eru að leita að árstíðabundnu starfi í Danmörku.
Nánari upplýsingar um vinnuskilyrði og -réttindi í Danmörku eru á vefsíðunni: borger.dk.
Nánari upplýsingar fást hjá viðkomandi stéttarfélagi. Flest stéttarfélög eru aðilar að regnhlífasamtökum stéttarfélaganna: LO.
Að leita að starfi í Danmörku á atvinnuleysisbótum frá heimalandinu
Athugið! Ef flutt er til Danmerkur frá Færeyjum eða Grænlandi gilda upplýsingarnar hér að neðan ekki. Í staðinn skal hafa samband við viðkomandi atvinnuleysistryggingasjóð í Færeyjum eða á Grænlandi.
Ef einstaklingur flytur til Danmerkur frá norrænu ríki eða EES-ríki getur hann fengið atvinnuleysisbætur frá atvinnuleysissjóði í heimalandinu í þrjá mánuði á meðan leitað er að starfi í Danmörku. Þá skal viðkomandi vera atvinnuleysisbótaþegi og uppfylla önnur skilyrði.
Til þess að fá dagpeninga við atvinnuleit í Danmörku skal viðkomandi hafa vottorð því stjórnvaldi sem greiðir bæturnar. Vorðið nefnist PD U2 í Finnlandi og Svíþjóð en E-303 í Noregi og á Íslandi.
Þegar viðkomandi kemur til Danmerkur skal hann skrá sig hjá vinnumiðlun. Bæturnar eru greiddar í dönskum krónum en skatturinn er greiddur í heimalandinu.
Hafið samband við stjórnvöld í heimalandi tímanlega
Hafa skal samband við það stjórnvald sem greiðir út atvinnuleysisbætur tímanlega, áður en farið er af stað, til þess að fá upplýsingar um sérstök skilyrði, tímafresti og mögulega bið á málsmeðferð.
Ef viðkomandi finnur ekki vinnu
Ef einstaklingur fær ekki vinnu í Danmörku á þessum þremur mánuðum, skal hann snúa aftur til þess lands þar sem hann er atvinnuleysistryggður og skrá sig hjá viðeigandi stjórnvöldum.
Ef viðkomandi fær vinnu
Ef viðkomandi fær starf í Danmörku þarf hann að tryggja sig í Danmörku. Það þýðir að viðkomandi þarf að skrá sig í danskan atvinnuleysissjóð (A-kasse). Vottorð er nauðsynlegt til að færa uppsöfnuð réttindi frá atvinnuleysistryggingum annars lands til atvinnuleysissjóðs í Danmörku. Vottorðið nefnist PD U1 ef réttindi eru flutt frá atvinnuleysissjóði í Finnlandi eða Svíþjóð og E-301 ef réttindi eru flutt frá Noregi eða Íslandi.
Vottorðið fæst hjá stjórnvaldi sem fer með atvinnuleysisbætur í því landi þar sem viðkomandi er atvinnuleysistryggður.
