Document Actions

Launþegar á landamærasvæðum

Launþegar á landamærasvæðum eru þeir sem búa í einu norrænu ríki og vinna í öðru. Eftirfarandi eru þær reglur sem gilda um skattlagningu og almannatryggingar launþega á landamærasvæðum.

Öresundsbron
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Atvinnuleysistryggingar

Ef einstaklingur býr í einu norrænu ríki og vinnur í öðru, telst viðkomandi vera launþegi á landamærasvæði.

Viðkomandi á að vera atvinnuleysistryggður í starfslandi. Ef unnið er í tveimur ríkjum eru reglurnar örlítið flóknari og þarf að hafa samband við atvinnuleysistryggingasjóð til þess að fá upplýsignar um hvaða reglur gilda.

Ef einstaklingur missir vinnuna skal hann skrá sig atvinnulausan í búsetulandi. Hann á einnig rétt á mögulegum atvinnuleysisbótum í búsetulandi.

Skattar

Meginreglan er sú að launatekjur eru skattlagðar í starfslandi. Þó þarf viðkomandi oftast nær einnig að skila skattskýrslu í búsetulandi. Þar skal gefa upp allar tekjur frá öllum starfslöndum. Viðkomandi fær aftur á móti frádratt vegna þeirra skatta sem greiddir eru í starfslandi.

Launþegi á landamærasvæði

Launþegi á landamærasvæði er einstaklingur sem býr utan Danmerkur og hefur a.m.k. 75% af heildartekjum sínum vegna starfs í Danmörku.

Launþegi á landamærasvæði hefur takmarkaða skattskyldu, en á rétt á sama frádrætti og skattskyldir Danir sem búa í Danmörku.

Það þýðir að hægt er að draga frá kostnað sem tengist tekjum og persónulegum aðstæðum í búsetulandi, t.d. vaxtakostnað vegna húsnæðiskaupa.

Þeir sem hafa takmarkaða skattskyldu þurfa að skila sérstakri skattskýrslu árlega.

Danmörk og Svíþjóð hafa þar að auki gert skattasamning sem hefur í för með sér að einstaklingar sem ferðast til vinnu yfir Eyrarsundsbrúna geta fengið 50 danskar krónur í frádrátt fyrir hverja ferð yfir brúna á mótórhjóli eða í bifreið, og 8 danskar krónur í frádrátt ef almenningssamgöngur eru notaðar.

Nánari upplýsingar um norrænar skattareglur á norrænu skattavefgáttinni: Nordisk eTax.

Upplýsingaþjónustan Øresund Direkt

Á vefsíðu upplýsingaþjónustunnar: Øresund Direkt er mikið af upplýsingum fyrir þá sem ferðast til vinnu milli Danmerkur og Svíþjóðar.

Tengt efni
  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Samningur til að komast hjá tvísköttun arfs og gjafafjár (Samningur)

    Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar til að komast hjá tvísköttun arfs og gjafafjár frá 12. september 1989. Svíþjóð sagði samningnum upp fyrir sitt leyti 25. júní 2007 og Svíar eru því ekki lengur aðilar að samningnum.

  • Norðurlandasamningur um almannatryggingar (Samningur)

    Norðurlandasamningur um almannatryggingar, samþykktur 18. ágúst 2003.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.