Starfa í mörgum löndum samtímis
Upplýsingar um reglur um skatta og almannatryggingar þegar starfað er í fleiru en einu norrænu ríki samtímis.
Almannatryggingar
Almannatryggingar þegar starfað er samtímis í fleiri en einu ESB/EES ríki.
Þeir sem starfa í fleiri en einu ESB- eða EES-ríki samtímis, eiga yfirleitt aðild að almannatryggingum í því landi sem mest er unnið í.
Það þýðir að viðkomandi á að vera atvinnuleysistryggður í því landi sem mestur hluti starfsins fer fram.
- Nánari upplýsingar um almannatryggingar á Norðurlöndum eru á vefsíðunni NordSoc.
- Nánari upplýsingar um reglur sem gilda bæði um að starfa í Danmörku og Svíþjóð á vefsíðu Øresund Direkt.
Þegar starfað er samtímis í norrænu ríki sem ekki á aðild að ESB og öðru norrænu ríki
Þeir sem starfa á Íslandi, í Noregi, Færeyjum eða á Grænlandi og í öðru norrænu ríki, eru almannatryggðir í því landi sem þeir búa.
Ástæðan er sú að ný ESB-tilskipun (883/2004) hefur verið innleidd. Þetta á við um ESB-ríkin Danmörku, Finnland og Svíþjóð. Hin norrænu ríkin eiga ekki aðild að ESB og hafa ekki (enn) innleitt nýju tilskipunina, og norræni samningurinn um almannatryggingar hefur ekki verið aðlagaður að tilskipuninni. Þess vegna er fyrri ESB-tilskipunin (1408/71) enn í gildi, eða samsvarandi reglur, annars staðar á Norðurlöndum.
Flutningur á tryggingatímabili milli landa
Einstaklingur getur flutt trygginga- og starfstímabil frá atvinnuleysistryggingakerfi í einu norrænu ríki til annars.
Vilji einstaklingur fá trygginga- og starfstímabil metið til réttinda til atvinnuleysisbóta í öðru EES ríki, verður hann að hafa vottorð til staðfestingar. Atvinnuleysistryggingasjóður gefur út vottorð PD U1/E301 DK eða N 301 DK.
Ef viðkomandi vill að trygginga- og starfstímabil til réttinda til atvinnuleysisbóta í Noregi, á Íslandi, í Lichtenstein eða Sviss séu metin, skal nota vottorð sem heitir PD U1/E301 DK og vottorð sem heitir N 301 DK ef um er að ræða önnur EES ríki. Sama eyðublað - EØS 4 - er notað við umsókn um bæði vottorðin.
- Nánari upplýsingar og eyðublöð á vefsíðunni: borger.dk.
Hægt er að flytja trygginga- og starfstímabil sem áunnist hafa í öðru EES ríki yfir í atvinnuleysistryggingasjóð í Danmörku. Þá þarf að sækja um vottorð PD U1/E301 eða N 301 hjá atvinnuleysistryggingasjóði eða samsvarandi stjórnvaldi í því landi sem unnið er í.
Einnig er mikilvægt að muna að skrá sig inn í danskan atvinnuleysistryggingastjóð í síðasta lagi átta vikum eftir að réttur einstaklings til atvinnuleysisbóta rennur út í öðru EES ríki.
Skattar
Meginreglan er sú að launatekjur eru skattlagðar í því landi sem þeirra er aflað.
Auk skal gera skattskýrslu í því landi eða löndum sem viðkomandi hefur skattskyldu. Á Norðurlöndunum eru reglur um hvenær einstaklingur hefur fulla skattskyldu ólíkar.
Nánari upplýsingar um reglur um hvenær einstaklingur hefur fulla skattskyldu í hverju norrænu ríki fyrir sig á norrænu vefsíðunni: eTax.
Full skattskylda í Danmörku?
Þeir sem búa í Danmörku hafa fulla skattskyldu þar og eiga í skattskýrslu að gefa upp tekjur sem aflað er bæði í Danmöku og annars staðar.
Skattskýrslan skiptist í tvo hluta: stækkað skattskýrslueyðblað og skattskýrslu fyrir erlendar tekjur. Í stækkuðu skattskýrslunni á að gefa upp allar tekjur og allan frádrátt frá Danmörku.
Í skattskýrslunni fyrir erlendar tekjur á að gefa upp launatekjur frá erlendum atvinnuveitanda og frádrætti, sem tengjast launum, t.d. flutningsfrádrátt.
Norræn skattayfirvöld
Nánari upplýsingar eru á vefsíðum norræna skattayfirvalda og á sameiginlegri vefgátt norrænna skattayfirvalda, Nordisk eTax.
Danmörk: Skattar
Finnland: Vero/Skatt
Ísland: Ríkisskattstjóri
Noregur: Skatteetaten
Svíþjóð: Skatteverket
