Document Actions

Stéttarfélög í Danmörku

Þeir sem leita upplýsinga um laun og starfskjör í Danmörku geta snúið sér til stéttarfélags í viðkomandi grein. Hér eru frekari upplýsingar um stéttarfélög og samtök stéttarfélaga í Danmörku.

Arbetsmiljö
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Stéttarfélög gæta faglegs réttar félaga sinna á vinnustað.

Eitt af mikilvægustu verkefnum stéttarfélaga er tryggja að allir vinnustaðir eigi aðild að kjarasamningum og að taka þátt í því að bæta kjarasamninga, þar með talið að leysa vandamál sem tengjast launamálum.

Þeir sem leita upplýsinga um réttindi og skyldur launþega, geta haft samband við samtök stéttarfélaga eða það stéttarfélag sem tengist greininni eða fagsviði.

Skattafrádráttur vegna stéttarfélagsgjalda

Félagar greiða félagsgjald til stéttarfélagsins.

Launþeginn á rétt á skattafrádrátti vegna félagsgjalda. Oft er þetta forskráð í skattskýrslunni.

Nánari upplýsingar um upphæð félagsgjalds sem er frádráttarbær frá skatti eru á vefsíðu Skattstjóra

Samtök stéttarfélaga

Stéttarfélög eru aðilar að samtökum stéttarfélaga, sem einnig eru aðilar að enn stærri samtökum.

Samtök stéttarfélaga sjá til að mynda um kjaraviðræður.

Í Danmörku eru þrjú aðalsamtök:

Samtök stéttarfélaga geta gefið einstaklingum upplýsingar um hvaða stéttarfélag tengist ólíkum greinum og fagsviðum.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.