Document Actions

Að sækja um starf í Noregi

Eftirfarandi eru upplýsingar um hvernig sótt er um starf í Noregi og hvar má finna auglýsingar um lausar stöður.

Arbetsmiljö
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Hægt er að sækja um starf í gegnum opineru vinnumiðlunina í Noregi. Útlendingar geta einnig notfært sér EURES-þjónustuna í heimalandinu til að finna starf í Noregi. Einstaklingur sem fær dagpeninga frá EES-ríki getur haldið þeim í þrjá mánuði á meðan sótt er um starf í Noregi.

Á vefsíðu Vinnu- og tryggingamálastofnunarinnar (NAV) eru fjölmargar auglýsingar um laus störf og þar er gott að hefja leitina. Einnig er hægt að snúa sér til NAV-skrifstofu þess svæðis sem viðkomandi vill starfa á. Heimilisföng og símanúmer eru á vefsíðunni.

Önnur leið til að leita að starfi er að nota einkareknar atvinnumiðlanir eða með því að hafa samband beint við mögulega vinnuveitendur.

Nytsamlegar upplýsingar um atvinnuumsóknir

EURES (European Employment Services) er samnefnari fyrir opinberar vinnumiðlanir í ESB og EES og Noregur og Ísland eru því einnig aðilar. Á vefsíðu EURES er meðal annars hægt að skoða laus störf sem auglýst eru hjá vinnumiðlunum í þeim löndum sem eru með í tengslanetinu og þar að auki heimilisföng og símanúmer hjá EURES-ráðgjöfum í ríkjunum. EURES-ráðgjafarnir svara spurningum varðandi störf í Noregi og EURES-ríkjunum.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.