Að starfa samtímis í fleiri löndum
Eftirfarandi eru upplýsingar um skatta og almannatryggingar einstaklinga sem starfa bæði í Noregi og öðru norrænu ríki.
Að starfa samtímis í fleiri löndum
Ef einstaklingur hyggst starfa samtímis í tveimur eða fleiri ríkjum, er meginreglan sú að viðkomandi skuli eiga aðild að almannatryggingakerfinu í búsetulandi með því skilyrði þó að hluti vinnunar sé unninn þar. Viðkomandi skal hafa samband við tryggingastofnun sem hann á aðild að og tilkynna um starf í öðru ríki, áður en vinna hefst. Þetta er mikilvægt vegna uppsöfnunar tryggingaréttinda og til þess að komast hjá því að greiða tryggingagjald í tveimur eða fleiri ríkjum.
Ef einstaklingur verður atvinnulaus eftir að hafa unnið samtímis í fleiri ríkjum, skal viðkomandi sækja um bætur í því landi þar sem hann á aðild að almannatryggingakerfinu. Þetta á einnig við ef viðkomandi missir vinnuna í landi sem hann er ekki tryggður í. Nánari upplýsingar á vefsíðu: NAV. Nánari upplýsingar um skattamál vegna starfs í fleiri ríkjum samtímis eru á norrænu skattagáttinni: Nordisk eTax.
Ferðast til vinnu frá útlöndum
Einstaklingar sem þurfa að búa fjarri heimili sínu vegna vinnu, en heimsækja það reglulega geta verið skilgreindir sem aðilar sem ferðast yfir landamæri til vinnu. Þessir einstaklingar geta á kröfu á frádrætti vegna kostnaðar sem hlýst af ferðum, svokallað „pendlerfradrag“. EES-samningurinn tryggir að EES-borgarar sem starfa í Noregi njóti sömu réttinda og launþegar sem ferðast til vinnu innan Noregs. Til þess að geta fengið frádrátt vegna ferðalaga til vinnu þarf viðkomandi að búa í EES-ríki, ekki gilda sömu reglur um fjölskyldufólk sem ferðast til vinnu og einstæða/ógifta. Annar möguleiki sem þeir sem ferðast til vinnu hafa, er að fara fram á frádrátt fyrir erlenda launþega. Nánari upplýsingar um þau skilyrði sem þarf að uppfylla og hvaða frádrátt er hægt að fá á vefsíðu skattstjóra: Skatteetaten
Launþegar á landamærasvæðum (grensegjengere)
Launþegar á landamærasvæðum (grensegjengere) eru einstaklingar sem búa í sveitarfélögum sem eiga landamæri að Finnlandi eða Svíþjóð og starfa í sveitarfélagi hinum megin landamæranna. Um þessa einstaklinga gilda sérstakar reglur. Ef viðkomandi býr á landamærasvæði í Noregi og starfa hinum megin landamæranna skal hann eingöngu greiða tekjuskatt í Noregi. Það er skilyrði að viðkomandi dvelji minnst tvo daga og eina nótt í viku á heimili sínu í Noregi. Nánari upplýsingar á norrænu skattagáttinni: Nordisk eTax.
