Atvinnu- og dvalarleyfi í Noregi
Hverjir þurfa að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi í Noregi? Eftirfarandi eru upplýsingar um hverjir þurfa að sækja um leyfi og hver getur skráð sig í vinnu. Einnig eru upplýsingar um útlendingastofnun í Noregi.
Norrænir ríkisborgarar eiga rétt á að búa og/eða starfa í öðru norrænu ríki án atvinnu- og dvalarleyfis.
EES-/EFTA-borgurum er frjálst að flytja til landsins og hefja strax störf. Ef þeir hyggjast dvelja í landinu í meira en þrjá mánuði verða þeir að skrá sig á fyrstu þremur mánuðunum,óháð því hvort þeir ætla að stunda atvinnu, nám eða eru í fjölskyldu þeirra sem það gera. Ríkisborgarar annarra ríkja skulu hafa samband við Útlendingastofnun til að fá upplýsingar um þær reglur sem gilda um þá.
Atvinnuleitendur geta leitað vinnu í Noregi í sex mánuði. Með öðrum orðum þurfa EES/EFTA-borgarar sem hyggjast dvelja í Noregi í lengri tíma samfleytt að skrá sig.
Fyrir launþega frá Búlgaríu og Rúmeníu gilda svokallaðar tímabundnar reglur (overgangsregler),og þurfa þeir að sækja um dvalarleyfi. Eftir að umsókn hefur verið send inn, má viðkomandi hefja störf á meðan fjallað er um umsóknina. Tímabundnu reglurnar gilda eingöngu fyrir launþega, þannig að fyrir búlgarska og rúmenska ríkisborgara sem hyggjast dvelja í Noregi af öðrum ástæðum en til að vinna, gilda sömu reglur og fyrir aðra ESB/EES/EFTA-borgara.
Einstaklingur sem er með gilda vegabréfsáritun eða dvalarleyfi í Schengen-ríki, þarf ekki að sækja um vegabréfsáritun til að ferðast til annars Schengen-ríkis. Það hefur í för með sér að borgarar frá ríki utan Norðurlanda sem hafa dvalarleyfi í einu norrænu ríki, þurfa ekki að sækja um vegabréfsáritun til þess að ferðast milli norrænu ríkjanna.
Á vefsíðu útlendingaeftirlitsins: Utlendingsdirektoratet eru nánari upplýsingar.
