Launalaust orlof í Noregi
Launalaust orlof (permittering) er tímabundin aðgerð þar sem starfsmaður er skyldaður til að taka sér frí frá vinnu án launa. Að neðan eru nánari upplýsingar um launalaust orlof og hvernig sækja skal um dagpeninga í tengslum við það.
Launalaust orlof (permittering) er tímabundin aðgerð þar sem starfsmaður er skyldaður til að taka sér frí frá vinnu og atvinnuveitandi þarf ekki að greiða laun. Starfssamband starfsmanns og vinnuveitanda er óbreytt og skilyrði er að orlofið sé tímabundið, að öðrum kosti skal segja starfsmanni upp störfum. Launalaust orlof skal vera af gildum ástæðum sem tengjast rekstri fyrirtækisins en ekki starfsmanninum. Dæmi um gildar ástæður geta verið nauðsynlegur niðurskurður á kostnaði, skortur á pöntunum, praktískar starfshindranir og að þörfin sé tímabundin.
Launalaust orlof að fullu eða hluta til
Ef um fullt launalaust orlof er að ræða er starfsmaður með öllu undanskilinn starfsskyldum. Ef um launalaust orlof að hluta til er að ræða má starfsmaður vera í hlutastarfi en annars í launalausu orlofi. Hægt er að fá greiðslur frá NAV ef viðkomandi er í a.m.k. 40% launalausu orlofi. Gera verður greinarmun á launalausu orlofi og
- Uppsögn að hluta til eða fullu
- Styttingu vinnutíma, sem hefur í för með sér að starfsmaður á rétt á launuðum uppsagnarfresti
- Orlofi sem starfsmaður getur fengið með eða án launa að eigin ósk
Tilkynning um launalaust orlof
Gera skal viðvart um launalaust orlof 14 dögum áður en það gengur í gildi og á þeim tíma skal starfsmaður vinna eðlilegan vinnutíma og fá laun samkvæmt því. Þegar launalaust orlof hefst er vinnuveitandi skyldugur til að greiða laun í fimm daga.
Launalaust leyfi getur staðið yfir í óákveðinn tíma, en að hámarki í 52 vikur á 18 mánaða tímabili. Lengd orlofs án launa skal tilgreint í tilkynningu um launalaust orlof. Starfsmaður er skyldugur til að mæta til vinna aftur þegar orlofinu lýkur, þegar um óákveðið tímabil er að ræða er starfsmaður skyldugur að mæta innan tveggja daga frá því vinnuveitandi hefur samband.
Dagpeningar í launalausu orlofi
Hægt er að fá greidda dagpeninga frá NAV í launalausu orlofi, en uppfylla þarf ákveðin skilyrði:
- Uppfylla þarf skilyrði um rétt til dagpeninga, nánari upplýsingar eru á vefsíðu NAV
- Viðkomandi skal vera launþegi
- Vinnutími skal hafa minnkað um a.m.k. 40%
- Launalaust orlof skal vera tilkomið vegna verkefnaskorts eða annarra ástæðna sem vinnuveitandi hefur ekki stjórn á
Í einstaka tilfellum eiga einstaklingar ekki rétt á dagpeningum, nánari upplýsingar þar að lútandi eru á vefsíðu NAV.
Sækja verður um dagpeninga til NAV og tekur málsmeðferðin almennt 3 vikur.
Um dagpeningagreiðslur í launalausu orlofi gilda reglur um dagpeninga, sem m.a. fela í sér að viðkomandi verður að dvelja í Noregi. Nánar um þessi skilyrði á „
Ef viðkomandi er starfsmaður á landamærasvæði (grensearbeider) skal hann sækja um dagpeninga á NAV-skrifstofunni á sínu svæði. Þetta á við þó viðkomandi dvelji í búsetulandi á meðan á orlofinu stendur. Nánar um þetta á NAV sine sider om grensearbeidere.
Nánar um launalaust orlof á vefsíðum vinnueftirlitsins Arbeidstilsynets nettsider og vefsíðum NAV.
