Document Actions

Réttindi launþega í Noregi

Réttindi og skyldur fylgja því að vera launþegi í Noregi. Á þessari síðu eru nánari upplýsingar um hvernig afla má upplýsinga um þessi réttindi og skyldur.

Nordiske lover
Ljósmyndari
Eivind Sætre

Viss réttindi fylgja því að vera launþegi í Noregi. Á vefsíðunni arbeidstakersidene til veiledningstjenesten Norge.no, eru upplýsingar um réttindi og skyldur launþega í Noregi. Meðal þess sem þar er fjallað um eru ráðningakjör, uppsagnir, brottrekstur, laun, ákvarðanir um sumarleyfi, leyfi og fleira.

Vinnueftirlitið

Vinnueftirlitið í Noregi hefur eftirlit með því að atvinnurekendur fylgi þeim kröfum sem gerðar eru til vinnuumhverfis. Á vefsíðu Vinnueftirlitsins Arbeidstilsynets nettsider eru ítarlegar upplýsingar um réttindi launþega samkvæmt lögum um vinnuumhverfi. Á þessum síðum eru einnig leiðbeiningar um hvernig skal bregðast við, við ýmsar aðstæður, til að mynda til ef laun eru ekki greidd á réttum tíma.

Vinnueftirlitið hefur gefið út bækling með upplýsingum fyrir erlenda launþega í Noregi í samstarfi við launþega- og atvinnurekendasamtökin í bygginga- og mannvirkjagerð. Bæklingurinn er fyrst og fremst gerður fyrir starfsmenn í bygginga- og mannvirkjagerð, en upplýsingarnar eru einnig gagnlegar fyrir aðra starfshópa. Bæklingurinn heitir „Velkommen som arbeidstaker i Norge” (Velkominn sem launþegi í Noregi) og er til á mörgum tungumálum. Bæklinginn má hala niður af vefsíðu samtaka stéttarfélaga.

Vinnuumhverfislögin

Vinnuumhverfislögin, eða lögin um vinnuumhverfi, vinnutíma, starfsvernd o.fl., eiga að tryggja gott vinnuumhverfi, starfskjör, jafnrétti í atvinnulífinu, gott samstarf milli launþega og atvinnurekanda o.s.frv. Lögin ná ekki til farmanna, veiða, fiskveiða og flughersins. Arbeidsmiljøloven Vinnuumhverfislögin í heild eru á vefsíðu Lovdata.

Vinnumálaráðuneytið er með eigin vefsíður um vinnuumhverfislögin nettsider om arbeidsmiljøloven. Auk upplýsinga um vinnuumhverfislögin eru þar upplýsingar um önnur mikilvæg málefni hvað varðar vinnuumhverfi, starfsréttindi, launauppgjör o.fl. Skoðið krækjurnar á listanum vinstra megin á síðunni.

Þjónustumiðstöð fyrir erlenda launþega

Í Ósló, Stavanger og Kirkenes eru starfræktar þjónustumiðstöðvar fyrir erlenda launþega. Vinnueftirlitið, lögreglan, skattstjóri og Útlendingastofa reka þjónustumiðstöðina í sameiningu. Í þjónustumiðstöðinni geta erlendir launþegar sótt um dvalarleyfi, kennitölu, skattkort og skráð sig í þjóðskrá. Atvinnurekendur með erlenda starfsmenn í vinnu geta einnig fengið ráðgjöf og leiðbeiningar í þjónustumiðstöðinni. Nánari upplýsingar eru á vefsíðum þjónustumiðstöðvanna Servicesentrenes hjemmesider .

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.