Document Actions

Sjúkradagpeningar fyrir launþega í Noregi

Eftirfarandi eru upplýsingar um hvenær hægt er að fá sjúkradagpeninga vegna veikinda og við hvaða aðstæður hægt er að flytja þá með sér til útlanda.

H1N1 Vaccin
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Sjúkradagpeningar fyrir launafólk

Sjúkradagpeningar eiga að bæta tekjumissi þegar launafólk sem á aðild að almannatryggingum verður óvinnufært vegna sjúkdóms eða slysa.

Einstaklingur getur fengið sjúkradagpeninga ef hann:

  • er óvinnufær vegna skertrar starfsgetu sem er augljóslega til komin vegna sjúkdóms eða slyss og hefur unnið í minnst fjórar vikur áður en hann varð óvinnufær
  • hann missir tekjur sem eru grundvöllur útreiknings á lífeyri vegna óvinnufærni. Krafa er gerð um að tekjugrundvöllur sjúkradagpeninga nemi a.m.k. 50 % af grunnupphæð (1/2 G). Þau tekjumörk eiga ekki við um sjúkradagpeninga á meðan atvinnurekandi greiðir sjúkradagpeninga.
  • hefur unnið í öðru EES-landi. Ef viðkomandi hefur ekki starfað í Noregi að minnsta kosti fjórar vikur, er hægt að reikna þann tíma sem unnin var í öðru EES-landi með því tímabili sem hann hefur starfað í Noregi og þannig uppfyllt skilyrði um sjúkradagpeninga.
  • Leggja þarf fram vottorð E-104 um vinnustundafjölda hjá Tryggingastofnun þegar sótt er um sjúkradagpeninga, til þess að sýna fram á vinnu sem unnin hefur verið í öðru EES-ríki. Hægt er að staðfesta óvinnufærni með tilkynningu eða læknisvottorði. Sjá nánari upplýsingar á vef NAV um hvenær fólk þarf að skrá sig sjálft og hvenær framvísa ber sjúkravottorði.

    Sjúkradagpeningar til sjálfstæðra atvinnurekenda og einyrkja

    Nánari upplýsingar um sjúkradagpeninga fyrir sjálfstæða atvinnurekendur og einyrkja, hvernig sótt er um, hve mikið er greitt og hve lengi er hægt að fá sjúkradagpeninga eru á vefsíðu NAV.

    Sömu kröfur gilda um sjálfstæða atvinnurekendur og einyrkja og aðra launþega til að fá greidda sjúkradagpeninga. Munurinn er sá að sjúkradagpeningar til sjálfstæðra atvinnurekenda og einyrkja eru ekki greiddir fyrstu 16 dagana frá og með þeim degi sem þeir urðu óvinnufærir. 16 daga biðtíminn hefst þegar farið er til læknis eða þegar NAV fær tilkynningu um óvinnufærni. Óvinnufærni skal staðfest með vottorði frá lækni.

    Sjúkradagpeningar þegar dvalið er erlendis

    Fólk á yfirleitt ekki rétt á sjúkradagpeningunum þegar það dvelst í öðru landi en Noregi, en í ákveðnum tilvikum er hægt að fá sjúkradagpeninga þegar dvalið er erlendis. Fyrst þarf fólk að kanna hvort það á aðild að almannatryggingum.

    Einstaklingar með ríkisfang í öðru EES-ríki sem starfa í Noregi og eiga aðild að almannatryggingum þar, en eru með lögheimili í öðru EES-ríki eða á einhverju Norðurlandanna, eiga rétt á sjúkradagpeningum frá Noregi sem greiddir eru út í búsetulandinu ef þeir veikjast á meðan dvalist er þar. Ef einstaklingur leggst inn á heilbrigðisstofnun á kostnað norskra yfirvalda eða er tryggður í almannatryggingum getur hann fengið sjúkradagpeninga greidda erlendis. Sækja verður um leyfi hjá NAV til þess að fara úr landi á meðan á veikindum stendur, þá er yfirleitt farið fram á að læknir staðfesti að utanlandsferðin muni hvorki bitna á heilsunni, lengja óvinnufærnistímabilið né koma í veg fyrir eftirlit og eftirfylgni.

    Nánari upplýsingar um greiðslur sjúkradagpeninga erlendis á vefsíðu NAV.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.