Skattar í Noregi
Almenna reglan er sú að einstaklingar greiða skatt í því landi sem þeir starfa í, en engu að síður eru fjölmargar undantekningar frá þeirri reglu. Að neðan eru upplýsingar um mismunandi tegundir skattskyldu í Noregi.
Fjölmargar aðstæður ákvarða skattlagningu á tekjum einstaklinga. Í Noregi er hægt að hafa skattalega heimilisfesti eða takmarkaða skattskyldu. Auk þess er skattaland ákveðið eftir því hvort starfsmaðurinn er staðsettur erlendis, hvort hann býr í landamærasveitarfélagi og hvort hann eða hún vinnur í einu eða fleiri löndum samtímis. Í þessum kafla eru upplýsingar um almenna og takmarkaða skattskyldu í Noregi. Nánari upplýsingar um skatta eru einnig á norrænu skattagáttinni Nordisk eTax og vefsíðu skattstjóra Skatteetaten.
Skattar í Noregi
Meginreglan er sú að einstaklingar sem starfa í Noregi greiða tekjuskatt í Noregi. Viðkomandi þarf þá norskt skattkort og þarf að skila norskri skattskýrslu. Skattkortið fæst á næstu skattstofu, á vefsíðu Skattstjóra eru reglur nánari upplýsingar um heimilisföng. Skattkortið skal afhent vinnuveitanda, ef það er ekki gert eru 50% dregin frá í skatt. Þegar farið er á skattstofuna skal hafa með gilt vegabréf eða nafnskírteini sem viðurkennt er af ESB. Auk skatta greiðast 7.8% tekna í tryggingagjald í Noregi.
Athugið að til eru fjölmargar undantekningar frá þeirri meginreglu að skattar af tekjum greiðist í Noregi. Þessar reglur eru á norrænu skattagáttinni nordisk eTax. Ávallt skal hafa samband við skattstofuna til þess að fá nákvæmar upplýsingar um hvaða reglur gilda fyrir hvern og einn.
Full skattskylda
Einstaklingur sem dvelur í Noregi lengur en 183 daga á 12 mánaða tímabili, eða 270 daga á 36 mánuðum, skal samkvæmt norskum skattareglum greiða skatta af eignum og tekjum í Noregi, óháð því hvort þær eru staðsettar í Noregi eða hvort unnið hefur verið fyrir þeim í Noregi eða erlendis. Þetta þýðir að viðkomandi er með „skattalega heimilsfesti" í Noregi. Viðkomandi fær skattalega heimilisfesti í Noregi frá því tekjuári þegar dvöl í Noregi fer yfir 183 eða 270 daga (viðkomandi fær takmarkaða skattskyldu árið áður. Hér að neðan eru nánari upplýsingar um takmarkaða skattskyldu). Einstaklingur getur dvalið að meðaltali 90 daga á ári í Noregi án þess að fá þar skattalega heimilisfesti.
Takmörkuð skattskylda
Ef einstaklingur vinnur lítið í Noregi á ársgrundvelli getur hann verið með takmarkaða skattskyldu fyrir þau laun sem hann fær í Noregi. Búi hann í öðru norrænu ríki og dvelur í Noregi eitt eða fleiri tímabil sem ekki eru lengri en:
- 183 dagar á 12 mánuðum
eða
- 270 dagar á 36 mánuðum
skal viðkomandi greiða skatt af tekjum í Noregi ef hann:
- starfar hjá norskum vinnuveitanda, eða
- dvelur í Noregi lengur en 183 daga á 12 mánaða tímabili, eða
- er ráðinn af erlendum vinnuveitanda sem hefur fasta starfsstöð í Noregi, eða
- er leigður út sem starfskraftur
Aðrar tekjur frá öðru ríki eru ekki skattlagðar í Noregi.
Ef einstaklingur er með takmarkaða skattskyldu skal hann hafa norskt skattakort og ber vinnuveitandanum að draga af honum staðgreiðsluskatt og skila til skattayfirvalda. Skattlagningin fer eftir venjulegum norskum skattareglum. Í Noregi er enginn sérskattur fyrir einstaklinga sem starfa þar í skamman tíma.
Ef einstaklingur hefur takmarkaða skattskyldu á hann möguleika á frádrætti fyrir erlenda launþega.
Frádráttur fyrir erlenda launþega
Frádráttur fyrir erlenda launþega er frádráttur sem hægt er að velja í staðinn fyrir nokkra aðra frádráttarmöguleika sem einstaklingar geta átt kröfu á. Frádrátturinn er 10% af heildarlaunum, mest 40.000 norskar krónur.
Nánari upplýsingar um hver getur fengið þennan frádrátt eru á vefsíðu skattstjóra Skatteetatens hjemmesider.
Athugið að frádrátturinn er ekki veittur sjálfkrafa, heldur verður viðkomandi að fara fram á hann þegar norsk skattskýrsla er gerð. Að auki er mikilvægt að hafa í huga að frádrátturinn kemur í staðinn fyrir nokkra aðra frádráttarmöguleika (það borgar sig ekki alltaf að fara fram á hann). Nánari upplýsingar um skattamál erlendra starfsmanna á vefsíðu skattstjóra Skatteetatens internasjonale nettsider.
Skattalegur flutningur
Jafnvel þó einstaklingur flytjist búferlum frá Noregi er ekki endilega víst að hann flytji skattalega. Einungis þeir sem taka upp fasta búsetu í öðru ríki teljast vera fluttir frá Noregi í skilningi skattalaganna. Tímabundin dvöl í útlöndum breytir ekki því að viðkomandi er með skattalega heimilisfestu frá Noregi.
Til þess að flytja skattalega heimilisfesti frá Noregi þegar flutt er, verður viðkomandi að sýna fram á
- að hann hafi fasta búsetu í öðru ríki, og
- að viðkomandi hafi ekki dvalið í Noregi í meira en 61 dag á tekjuárinu, og
- að viðkomandi eða nákomnir (maki, sambýlingur, barn undir lögaldri) ráði ekki yfir íbúðarhúsnæði í Noregi.
Hafi viðkomandi búið skemur en 10 ár í Noregi fyrir það tekjuár þegar föst búseta í öðru landi er tekin upp, færist skattaleg heimilisfesti frá Noregi á því tekjuári þegar öll þrjú skilyrðin að ofan eru uppfyllt.
Hafi viðkomandi búið alls 10 ár eða lengur í Noregi áður en flutt er búferlum til langframa, getur skattaleg heimilisfesti í fyrsta lagi færst að loknu þriðja tekjuári eftir árið sem viðkomandi flutti búferlum til útlanda. Fyrir hvert þessara ára þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
- dvölin í Noregi má ekki vera lengri en 61 dagur
- viðkomandi eða nákomnir (maki, sambýlingur, barn) mega ekki ráða yfir íbúðarhúsnæði í Noregi, megi ekki eiga, beint eða óbeint, leigja eða á annan hátt eiga afnotarétt að íbúð í Noregi.
Börn undir lögaldri sem búa hjá fyrrverandi maka eða sambýlingi teljast undir venjulegum kringumstæðum ekki ráða yfir íbúðarhúsnæði í Noregi.
Senda verður skattskýrslu fyrir árin þrjú og tilkynna að skilyrði fyrir flutningi á skattalegri heimilisfesti séu uppfyllt.
