Stéttarfélög í Noregi
Þegar leitað er upplýsinga um laun og starfsskilyrði í Noregi er best að snúa sér til viðkomandi stéttarfélags. Hér eru frekari upplýsingar um stéttarfélög og samtök stéttarfélaga í Noregi.
Stéttarfélög eru félagasamtök launþega sem starfa innan sama fags eða geira. Félögin vinna að því að tryggja réttindi og starfsskilyrði félaganna og sjá um mál fyrir þá meðal annars kjarasamninga. Stéttarfélögin eiga síðan aðild að samtökum stéttarfélaga. Þeir sem eru félagar í stéttarfélagi geta fengið aðstoð félagsins komi upp ágreiningur milli launþega og atvinnurekanda.
Samtök stéttarfélaga eru skipulögð í gegnum ein aðalsamtök. Í Noregi eru fjögur samtök stéttarfélaga:
Landsorganisasjonen i Norge (LO)sem eru stærstu samtök launþega í Noregi. 21 stéttarfélag ólíkra faghópa eru innan raða LO, meðal annarra félag verslunarmanna, félag ríkisstarfsmanna og bandalag starfsmanna ríkis og sveitarfélaga.
Hovedorganisasjonen for universitets- og høyskoleutdannede (Unio) eru næst stærstu stéttarfélagasamtök Noregs. 10 stéttarfélög ólíkra starfshópa eru innan raða Unio, meðal annarra félag hjúkrunarfræðinga, menntasamband starfsmanna skóla og félag sjúkraþjálfara.
Yrkesorganisasjonenes Sentralforbund (YS) hefur innan sinna vébanda 22 stéttarfélög og nær til allra greina atvinnulífsins, meðal annars stéttarfélags þeirra sem vinna við samgöngur, s.s. strætisvagnastjórar og samtaka lyfjafræðinga.
Akademikerne er stærsta launþegasambandið í Noregi fyrir langskólagengna, í sambandinu eru 13 stéttarfélög, meðal annars félag tannlækna, arkitekta, lækna, lögfræðinga og sálfræðinga.
Á vefsíðum samtaka stéttarfélaganna er gefið upp hvaða stéttarfélög starfa innan vébanda hvers og eins. Samtökin beina launþegum til þeirra stéttarfélaga sem tengjast ólíkum starfshópum eða iðngreinum. Spurningum um réttindi og skyldur launþega má beina til samtaka stéttarfélaga eða beint til viðkomandi stéttarfélags.
Skattafrádráttur vegna stéttarfélagsgjalda
Launþegar eiga kost á skattafrádrætti vegna greiðslu stéttarfélagsgjalda. Oft er frádrátturinn forskráður í skattskýrsluna. Á vefsíðu skattsins Skatteetatens nettsider eru upplýsingar um hve mikið af stéttarfélagsgjöldum eru frádráttarbær.
