Document Actions

Tekjur frá Noregi á atvinnuleysistímabili

Eftirfarandi eru upplýsingar um þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem þiggja atvinnuleysisbætur frá Noregi. Einnig eru upplýsingar um hvernig þiggja má dagpeninga í útlöndum eða færa réttindi til dagpeninga til útlanda.

Fjällsjö
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Atvinnuleysi

Einstaklingar í Noregi eru sjáfkrafa tryggðir við atvinnuleysi í gegnum almannatryggingakerfið. Norska atvinnuleysistryggingakerfið er hluti af norska almannatryggingakerfinu - folketrygden.

Dagpeningar í Noregi

Dagpeningakerfið nær til launþega og er það almennt kerfi. Það þýðir að allir launþegar á aldrinum 18-67 ára eru tryggðir ef þeir uppfylla ákveðin grunnskilyrði um dvöl í Noregi og eiga aðild að norska almannatryggingakerfinu. Réttur til dagpeninga er m.a. háður dvöl og greiðslu skatta í Noregi. Atvinnuleysisbótakerfið er fjármagnað m.a. með vinnuveitendaskatti og tryggingagjaldi, tryggingagjaldið er dregið frá launum launþega.

Almennar reglur um dagpeninga í Noregi eru á vefsíðu NAV. Til þess að geta sótt um dagpeninga í Noregi þarf viðkomandi að skrá sig sem atvinnuleitanda á vefsíðu NAV eða næstu NAV-skrifstofu. Eftir að skráning hefur farið fram er hægt að leggja inn umsókn um dagpeninga.

Atvinnuleit í Noregi á meðan dagpeningar eru þegnir frá öðru norrænu ríki

Einstaklingar geta sótt um vinnu í Noregi og þegið dagpeninga frá öðru norrænu/EES-ríki í allt að þrjá mánuði. Viðkomandi verður að:

  • Hafa í fórum sínum útfyllt eyðublað E303 frá því landi sem hann á rétt á dagpeningum í
  • Skrá sig í atvinnuleit hjá NAV

NAV sækir um norska kennitölu fyrir viðkomandi og veitir ráðgjöf um atvinnuleit og upplýsingar um norskar skráningarreglur

Áunnin réttindi til dagpeninga flutt frá öðru norrænu ríki til Noregs

Hægt er að flytja með sér réttindi til dagpeninga sem áunnin eru síðustu 3 almanaksár, ef viðkomandi hyggst flytja frá norrænu/EES-ríki til Noregs. Þó ber að hafa í huga að kröfur eru gerðar um að viðkomandi hafi orðið atvinnulaus í Noregi áður en hægt er að sækja um dagpeninga þar. Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla til að fá dagpeninga í Noregi:

  • Við komandi þarf að geta sýnt fram á að hafa orðið atvinnulaus í Noregi, nægilegt er að hafa orðið atvinnulaus að ósekju eftir minnst eins dags starf.
  • Áunnin réttindi sem flutt eru frá því landi sem flutt er frá veita einnig réttindi til dagpeninga í Noregi
  • Almenn norsk skilyrði um dagpeninga þurfa að vera uppfyllt

Einstaka undanþágur eru veittar frá kröfunni um atvinnu, m.a. ef viðkomandi hefur áunnið sér rétt til dagpeninga í Noregi eða hefur þegið dagpeninga í Noregi á síðustu fimm árum áður en sótt er um. NAV veitir upplýsingar um undanþágur.

Við umsókn þarf að staðfesta öll vinnu- og bótatímabil frá því/þeim löndum sem unnið hefur verið í síðustu 3 almanaksár sem liðin eru á eyðublaði E301 (eyðublaði starfslands). Eyðublað 301 verður að vera fyllt út af stjórnvöldum í því landi sem unnið var í, og það skal fylgja með þegar sótt er um dagpeninga í Noregi.

Áunnin réttindi til dagpeninga frá Noregi flutt til annars norræns ríkis

Hyggist einstaklingur sem áunnið hefur sér réttindi til dagpeninga í Noregi flytja til annars norræns ríkis getur viðkomandi flutt þessi réttindi með sér ef:

  • Hann fellur undir EES-samninginn
  • Hann hefur átt aðild að norska almannatryggingakerfinu
  • Hann hefur áunnið sér rétt til dagpeninga á meðan hann var atvinnulaus í Noregi

Í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð er þess krafist að viðkomandi skrái sig í atvinnuleysistryggingasjóð (a-kasse) áður en hann öðlast rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum. Hafa ber í huga að flest ríki gera kröfu um að viðkomandi hafi verið í starfi áður en yfirfærð réttindi taka gildi. Kröfurnar eru mismunandi frá einu ríki til annars. Einstaklingar þurfa sjálfir að kanna hvaða kröfur eru gerðar í því landi sem flutt er til.

Á vefsíðu NAV eru upplýsingar um flutning á áunnum réttindum til dagpeninga.

Atvinnuleit í öðru norrænu ríki á dagpeningum frá Noregi

Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum er hægt að þiggja dagpeninga frá Noregi á meðan dvalið er í öðru norrænu ríki í atvinnuleit. Sækja ber um E303-vottorð hjá NAV. E303-vottorðið sýnir viðkomandi stjórnvöldum í dvalarlandi að viðkomandi eigi einnig áunnin réttindi til dagpeninga í Noregi.

Hafa ber í huga að gerðar eru ákveðnar kröfur, m.a. um að viðkomandi hafi verið algjörlega atvinnulaus og skráður sem atvinnuleitandi í ákveðinn tíma áður en flutt er. Nánari upplýsingar um skilyrði eru á vefsíðu NAV.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.