Document Actions

Að sækja um starf í Svíþjóð

Sótt er um starf í Svíþjóð í gegnum Vinnumiðlunina. Nánari upplýsingar:

Vinnumiðlunin: Arbetsförmedlingener sú stofnun í Svíþjóð sem atvinnuleitendur og fyrirtæki sem leita að starfsfólki leita til. Í Svíþjóð eru rúmlega 300 skrifstofur sem einstaklingar geta leitað til og fengið aðstoð við atvinnuleit og starfsleiðir.

Vinnumiðlunin er einnig með vefsíðu þar sem birtar eru upplýsingar um sænska vinnumarkaðinn, þjónustu vinnumiðlana og annað tengt vinnumarkaði. Þar er einnig hægt að senda inn ferilskrá og sækja um laus störf.

Á vef vinnumiðlunarinnar er einnig krækjulisti á aðrar vefsíður með auglýsingum um laus störf.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.