Document Actions

Atvinnuleyfi og dvalarleyfi í Svíþjóð

Nánari upplýsingar fyrir þá sem vilja búa og starfa í Svíþjóð í lengri tíma.

Norrænir ríkisborgarar geta búið í Svíþjóð í allt að eitt ár án þess að gerð sé krafa um að þeir skrái sig eða sæki um dvalarleyfi. Þeir sem ætla að dvelja lengur í landinu skulu skrá sig hjá Hagstofu. Nánari upplýsingar í kafla um „skráningu hjá Hagstofu" folkbokföring.

ESB/EES ríkisborgari sem er í starfi, rekur eigið fyrirtæki, stundar nám eða á nægilegt fé til að sjá fyrir sér, á rétt á því að dvelja í Svíþjóð. Með rétti til að dvelja í landinu er átt við að ESB/EES ríkisborgarar og fjölskyldur þeirra megi dvelja í Svíþjóð lengur en þrjá mánuði án dvalarleyfis. Einstaklingur sem á rétt á því að dvelja í landinu skal skrá sig hjá Innflytjendastofnun (Migrationsverket) innan þriggja mánaða frá komu.

ESB/EES ríkisborgarar sem starfa í Svíþjóð, en búa í öðru ESB/EES ríki og fara þangað a.m.k. einu sinni í viku, þurfa ekki að skrá sig í Svíþjóð.

Fyrir þá sem ekki eru ríkisborgarar í ESB- eða EES ríkjum

Þeir sem ekki eru ríkisborgarar í ESB- eða EES ríki verða að sækja um dvalarleyfi þegar þeir flytjast til Svíþjóðar. Nánari upplýsingar í kafla um „skráningu hjá Hagstofu" folkbokföring.

Arbetsmiljö

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.