Atvinnuleysisbætur í Svíþjóð
Upplýsingar um atvinnuleysisbætur í Svíþjóð.
Að verða aðili að atvinnuleysistryggingasjóði
Hafðu samband við þann atvinnuleysistryggingasjóð sem þú vilt verða aðili að. Í Svíþjóð eru atvinnuleysistryggingasjóðirnir tengdir hinum ýmsu starfsgreinum (t.d. verslun, menntun, umönnun o.s.frv.) Hjá Sambandi atvinnuleysistryggingasjóða: Arbetslöshetskassornas Samorganisation er listi yfir alla atvinnuleysistryggingasjóði.
Ef þú finnur ekki sjóð sem tilheyrir þinni starfsgrein, má sækja um aðild að almenna atvinnuleysistryggingasjóðnum, Alfa-kassan.
Sækja verður um aðild skriflega. Aðild getur í fyrsta lagi hafist fyrsta dag þess mánaðar sem umsóknin berst atvinnuleysistryggingasjóðnum.
Þeir sem starfa innan starfssviðs atvinnuleysistryggingasjóðsins geta orðið aðilar að honum. Einstaklingar sem ekki eru í starfi þegar sótt er um aðild, geta sótt um aðild, ef viðkomandi uppfyllti skilyrði sjóðsins þegar hann eða hún voru síðast í starfi.
Nánari upplýsingar um atvinnuleysistryggingasjóði í Svíþjóð fást hjá Sambandi atvinnuleysistryggingasjóða: Arbetslöshetskassornas Samorganisation.
Hver greiðir þér atvinnuleysisbæturnar?
Ef búið er í einu landi og starfað í öðru, skal sækja um atvinnuleysisbætur í búsetulandinu, ef viðkomandi verður atvinnulaus.
Mikilvægt er að senda umsókn um aðild að atvinnuleysistryggingasjóði í búsetulandi, um leið og starfslok verða í landi sem starfað er í. Ef starfinu er ekki lokið að fullu, skal sækja um atvinnuleysisbætur í því landi sem starfað er í.
Í vissum tilvikum er leyfilegt að flytja tryggingar- og starfstíma frá starfslandinu til búsetulandsins.
Gera skal grein fyrir tímabilunum á sérstöku eyðublaði, greinargerð E301. Sótt er um greinargerð E 301 hjá atvinnuleysistryggingasjóði starfslandsins, eða hjá vinnumálastofnun viðkomandi lands. Hafið samband við atvinnuleysistryggingasjóð um nánari upplýsingar.
Atvinnuleysisbætur í veikindum
Ef einstaklingur sem þiggur atvinnuleysisbætur veikist, á þegar að tilkynna um veikindi til Trygginagstofnunar: Försäkringskassan.
Þeir sem veikir eru og þiggja sjúkradagpeninga fá ekki atvinnuleysisbætur frá atvinnuleysistryggingasjóði. Þeir sem skráðir eru veikir, nota heldur ekki atvinnuleysisdaga.
Að flytja áunnin bótaréttindi vegna atvinnuleysis með sér til útlanda (E 303-dvöl)
Öll norrænu ríkin tilheyra Evrópska efnahagssvæðinu, það þýðir að einstaklingur getur dvalið í öðru norrænu ríki en heimalandi í atvinnuleit allt að þrjá mánuði og jafnframt haldið atvinnuleysisbótum frá heimalandinu.
Ef flytja á til annars norræns ríkis í atvinnuleit og jafnframt að halda atvinnuleysisbótum, verður viðkomandi að sækja um á þar til gerðu eyðublaði E 303, sem fæst hjá atvinnumiðluninni.
Eftirfarandi aðstæður verða að vera til staðar til að E 303 dvöl, verði samþykkt:
- Viðkomandi verður að hafa verið atvinnulaus og hafa átt rétt á atvinnuleysisbótum í fjórar vikur hið minnsta, áður en dvöl hefst.
- Viðkomandi verður að vera skráður til heimilis í því landi sem atvinnuleit fer fram.
- Viðkomandi verður að vera skráður sem atvinnuleitandi.
- Það er eftirlitsaðili með atvinnuleysistryggingum: Inspektionen för arbetslöshetsförsäkring, sem ákveður hvort viðkomandi einstaklingur eigi rétt á atvinnuleysisbótum frá heimalandi sínu í þrjá mánuði á meðan leitað er að vinnu í öðru norrænu ríki.
Sá sem fengið hefur E 303 samþykkt, skal skrá sig hjá opinberri vinnumiðlun: arbetsförmedlingen um leið og hann kemur til þess lands sem hann hyggst sækja um starf í.
Ef skráning er gerð síðar en sjö dögum frá því að viðkomandi atvinnuleitandi kemur til landsins, eru eingöngu greiddar atvinnuleysisbætur frá og með skráningardegi. Bætur eru greiddar út í því landi sem sótt er um vinnu í.
Ef ekki tekst að finna starf er mikilvægt að viðkomandi snúi aftur til heimalands síns, áður en þriggja mánaða tímabilinu lýkur. Komi viðkomandi heim eftir að þriggja mánaða tímabilinu lýkur, fellur réttur til atvinnuleysisbóta niður.
Samkomulag gert við vinnumiðlun um atvinnuleit
Einstaklingur sem leitar atvinnu í grannríki sem er svo stutt frá heimalandi að hægt er að ferðast á milli til vinnu, getur sótt um vinnu þar, án þess að atvinnuleysisbætur skerðist. Nauðsynlegt er þó að gera um þetta samkomulag við vinnumiðlunina áður en farið er af stað.
Nánari upplýsingar um atvinnuleysistryggingar á vefsíðu Vinnumiðlunar: Arbetsförmedlingen.
