Býrð þú í fleiri löndum?
Fyrir einstaklinga sem búa bæði í Svíþjóð og í öðru landi gilda eftirfarandi reglur.
Ef þú býrð bæði í Svíþjóð og erlendis getur verið um tvöfalda búsetu að ræða. Um tvöfalda búsetu er að ræða þegar þú býrð að minnsta kosti einn sjöunda af tímanum í Svíþjóð og í öðru landi. Til dæmis þegar þú:
- gistir a.m.k. eina nótt í viku í Svíþjóð og eina nótt erlendis
- gistir a.m.k. tvær nætur í Svíþjóð hálfsmánaðarlega og tvær nætur erlendis
- gistir a.m.k. fjórar nætur í Svíþjóð mánaðarlega og fjórar nætur erlendis
Skráð lögheimili hefur fyrst og fremst áhrif á fjölskyldu- og atvinnustöðu þína. Undir venjulegum kringumstæðum er lögheimili skráð þar sem þú býrð ásamt fjölskyldu þinni (maka/sambýlingi eða barni). Heilsársnám telst vera starf þegar lagt er mat á atvinnustöðu þína.
Þú fellur alltaf undir tryggingakerfið í því landi sem þú vinnur í. Þeir sem starfa í mörgum löndum eru venjulega félagslega tryggðir í búsetulandinu.
Aðild að atvinnuleysistryggingasjóði tengist alltaf því landi, sem starfað er í. Ef þú starfar í tveimur löndum og ert ekki viss um hvar þú átt að vera aðili að atvinnuleysistryggingasjóði, hafðu þá samband við sjóðinn og leitaðu ráðgjafar.
