Document Actions

Einstaklingar í tímabundnu starfi í Svíþjóð.

Einstaklingar í tímabundnu starfi, til að mynda í sumarstarfi, í Svíþjóð. Huga þarf að eftirfarandi.

Arbetsmiljö
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Athugið að fá samning þar sem fram kemur vinnutími, hvað felst í starfinu og hver launin eru. Einnig hvort viðkomandi er tryggður. Ef vinnustaðurinn er aðili að kjarasamningum eru starfsmenn sjálfkrafa tryggðir.

Reglur um ungt fólk á vinnumarkaði eru margar. 18 ára og yngri mega til að mynda ekki vinna næturvinnu, ekki lengur en 8 tíma á dag, né heldur lengur en 40 tíma á viku.

Þeir sem þurfa á stuðningi og aðstoð að halda geta leitað til Samtaka verkalýðsfélaga í Svíþjóð, LO, sem starfrækir sérstakan hjálparsíma fyrir ungt fólk.

Til að fá svör við spurningum um skattlagningu skólanema og þeirra sem eru í sumarstörfum er best að snúa sér til skattstjóra; Skatteverket.

Nordjobb

Norrænir borgarar eða ESB-borgarar á aldrinum 18 til 28 ára, sem hafa hug á að starfa í öðru norrænu ríki geta sótt um sumarstarf í gegnum Nordjobb sem útvegar bæði húsnæði og störf fyrir ungt fólk á Norðurlöndum.

Tengt efni

 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.