Skattar í Svíþjóð
Nánari upplýsingar um skattareglur í Svíþjóð fyrir þá sem til að mynda starfa eða eiga húsnæði þar.
Meginreglan er sú að einstaklingar greiða skatta þar sem þeir starfa og hafa tekjur. Ekki skal greiða skatta í tveimur löndum af sömu tekjum.
Reglunni er fylgt eftir með tvísköttunarsamningum sem gerðir hafa verið milli Svíþjóðar og flestra EES ríkjanna.
Skattar í Svíþjóð
Algengustu skattar í Svíþjóð eru útsvar til sveitarfélaga (þar með talinn landsþingsskattur), tekjuskattur til ríkis og eignaskattur.
Allir greiða útsvar, en einungis þeir sem fara yfir lágmarkstekjur greiða tekjuskatt og einungis þeir sem eiga miklar eignir greiða eignaskatt. Eignaskattur er ekki reiknaður af tekjum heldur af öllum eignum einstaklings.
Útsvarsprósenta er ákveðin af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Almennt er skattaprósentan frá 26 og upp í 36 prósent af heildarlaunum launþega.
Ólíkir skattar
Skattar eru mismunandi eftir því hvort einstaklingur er launþegi eða rekur eigið fyrirtæki.
Launþegar sem eru ráðnir hjá sænskum vinnuveitanda eða erlendum vinnuveitanda sem rekur fyrirtæki í Svíþjóð greiða A-skatt.
Vinnuveitandinn dregur skatta af launum og greiðir launatengd gjöld (vinnuveitendagjöld). Þeir sem starfa hjá erlendum vinnuveitanda sem ekki rekur fyrirtæki í Svíþjóð verða sjálfir að standa skil á sköttum sínum (SA-skatt) mánaðarlega.
Þeir sem eiga aðild að sænskum almannatryggingum geta einnig samið við vinnuveitanda um að greiða launatengd gjöld sjálfir.
Atvinnurekendur sem stunda atvinnustarfsemi í fyrirtækjum fylla yfirleitt út F-skattskýrslu. Það þýðir að viðkomandi á sjálfur að greiða skatta sína og launatengd gjöld mánaðarlega.
Hvort sem einstaklingur greiðir A-, SA- eða F skatta á skatturinn sem vinnuveitandi eða einstaklingurinn skilar á árinu vera sem næst jafnvirði endanlegrar álagningar ársins. Ekki er hægt að ákveða að greiða skattinn eftir á.
Allar nánari upplýsingar um sænska skattkerfið eru á vefsíðu skattstjóra: Skatteverket.
Að búa í Svíþjóð og eiga búseturétt eða lítið hús í öðru norrænu ríki
Einstaklingur sem býr í Svíþjóð og hefur fastan búseturétt eða á lítið hús í öðru norrænu ríki sem hann nýtir til fastrar búsetu eða sem sumarhús, greiðir skatta í Svíþjóð vegna húsnæðisins erlendis.
Einstaklingar eru skattlagðir í Svíþjóð vegna húsnæðis sem þeir eiga erlendis. Húsnæðið erlendis er skattlagt eftir sænskum reglum sama hvernig skattlagningin er í hinu landinu.
Einstaklingur sem einnig er skattlagður í því landi sem húsnæði hans er í, getur fengið afslátt af sænska skattinum sem nemur erlenda skattinum.
Leigi einstaklingur út húsnæði sem hann á í öðru norrænu ríki eru leigutekjur skattlagðar í Svíþjóð.
Þegar húsnæði er selt í öðru norrænu ríki er sami skattur greiddur af söluverði og ef húsnæðið hefði verið í Svíþjóð.
Hagnaður eða tap eru reiknuð eins og um sænskt húsnæði væri að ræða. Hins vegar eru í gildi sérstakar reglur um hvernig reikna á gjöld vegna lítilla húsa sem keypt voru fyrir 1952.
Að uppfylltum vissum skilyrðum er hægt að fresta skattlagningu hagnaðarins.
Einstaklingur sem býr í norrænu ríki en aflar tekna í öðru norrænu ríki, getur fengið aðstoð vegna skattareglna á norrænu skattagáttinni, Nordisk e-Tax.
