Document Actions

Starfað í einu norrænu ríki og búið í öðru

Nánari upplýsingar fyrir þá sem starfa í öðru norrænu ríki en þeir búa í.

Öresundsbron
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Sérstakar skatta- og sjúkratryggingareglur gilda fyrir einstaklinga sem búa í einu norrænu ríki og starfa í öðru.

Reglan er almennt sú að sé viðkomandi aðili að almannatryggingum t.d. í Svíþjóð, ættu bætur og styrkir að koma þaðan og fylgja þeim reglum sem þar gilda.

Skattar og almannatryggingar

Þeir sem ferðast til starfa yfir landamæri búa og greiða skatt í því ríki sem þeir búa, en starfa í grannríki hinum megin landamæranna.

Reglur um þá sem ferðast yfir landamæri til Noregs til starfa

Einstaklingur sem býr í Svíþjóð og ferðast yfir landamæri til starfa í Noregi, skal greiða skatta af launum sem hann fær þar til Svíþjóðar.

Til þess að fá álagningarseðil frá sveitarfélagi sem starfað er í, verður að hafa samband við skattstofu í búsetusveitarfélaginu.

Viðkomandi getur sent inn bráðabirgðaskattskýrslu til búsetusveitarfélags síns og greitt sérstakan „A-skatt" til skattyfirvalda þar.

Jafnframt því að krafa er gerð til þess að sveitarfélögin liggi saman að landamærum, er gerð krafa um að viðkomandi einstaklingur dvelji reglulega þar sem hann býr í Svíþjóð. Almennt gildir sú regla að dvöl í Svíþjóð sé a.m.k. tveir dagar og ein nótt í viku.

Reglur um þá sem ferðast yfir landamæri til Finnlands til starfa

Ef einstaklingur býr og greiðir skatt í landamærasveitarfélagi í Svíþjóð og starfar í landamærasveitarfélagi í Finnlandi, sveitarfélögin þurfa ekki að liggja saman, er hann talinn ferðast yfir landamæri til starfa og dvela reglulega þar sem hann býr í Svíþjóð.

Almennt gildir sú regla að dvöl í Svíþjóð sé a.m.k. tveir dagar og ein nótt í viku. Hluti af degi getur talist einn dagur.

Reglur um þá sem ferðast yfir landamæri til Danmerkur til starfa

Reglur um þá sem ferðast yfir landamæri til starfa kváðu áður á um að skattur væri greiddur í heimalandi. Þessar reglur voru afnumdar 1. janúar 1997. En reglurnar gilda áfram um þá sem ferðuðust þegar yfir landamæri til starfa 1. janúar 1997 og hafa haldið því áfram.

Ef skipt er um vinnuveitenda í Danmörku gilda reglurnar um nýja starfið ef það stendur yfir í sex mánuði eða lengur og önnur skilyrði eru uppfyllt.

Reglur um þá sem ferðast yfir landamæri til starfa fela í sér að viðkomandi á aðild að almannatryggingum í því landi sem starfað er í. Laun þeirra sem greiða skatt til Svíþjóðar vegna búsetu en starfa í landamærasveitarfélagi í Noregi eða Finnlandi reiknast ekki með í lífeyrisréttindi í Svíþjóð.

Almannatryggingagjöld/vinnuveitendagjöld eru greidd til þess lands sem starfað er í, en ekki til Svíþjóðar. Starfi viðkomandi hins vegar bæði í landamærasveitarfélagi í Finnlandi eða Noregi og Svíþjóð geta gilt aðrar reglur.

Oftast eru þá almannatryggingagjöld og vinnuveitendagjöld greidd til Svíþjóðar. Hafið samband við atvinnuleysistryggingasjóð í Svíþjóð til að fá nánari upplýsingar um hvaða reglur gilda.

Útsendur starfsmaður

Sé einstaklingur útsendur starfsmaður sænsks atvinnurekanda í norrænu grannsveitarfélagi í stuttan tíma (eitt ár, með mögulegri framlengingu í eitt ár), er hægt að sækja um að halda aðild að almannatryggingakerfinu í Svíþjóð. Fylla þarf út eyðublað E 101 á vefsíðu skattstjóra: Skatteverket.

Afskráning

Hafið alltaf samband við Försäkringskassaní Svíþjóð og samsvarandi stjórnvald í því landi sem flutt er til, til að fá upplýsingar um annars vegar skráningu og hins vegar afskráningu inn og út úr landi. Einstaklingur ætti eingöngu að eiga aðild að almannatryggingum í einu landi í einu.

Nánari upplýsingar um réttindi þeirra sem ferðast yfir landamæri til starfa hjá Skattstjóra.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.