Document Actions

Stéttarfélög

Einstaklingum er bent á að hafa samband við stéttarfélag á sínu starfssviði til að fá upplýsingar um laun og starfskilyrði í Svíþjóð.

Stærstu stéttarfélögin starfa saman, þannig að mjög líklega er hægt að finna starfssvið sitt hjá einhverri eftirfarandi stofnana.

TCO er heiti bandalags ríkisstarfssmanna en félagar þess eru til að mynda verkfræðingar, hjúkrunarfræðingar, blaðamenn, kennarar, lögreglumenn og hagfræðingar.

LO, Alþýðusambandið í Svíþjóð, félagar þess eru til að mynda sjúkraliðar, bifvélavirkjar, starfsmenn veitingastaða, leikskólakennarar og starfsmenn verksmiðja.

SACO sem er stéttarfélag háskólamenntaðra starfsmanna m.a. verkfræðinga, lögfræðinga, sjúkraþjálfara og kennara.

SAC eru samtök sjálfstæðra fagfélaga.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.