Document Actions

Upplýsingar fyrir vinnuveitendur og/eða þá sem reka eigið fyrirtæki

Vinnuveitendur og þeir sem reka eigið fyrirtæki verða að fara eftir ákveðnum reglum þegar þeir ráða starfsfólk frá öðru ríki. Að neðan eru nokkrar grundvallarreglur.

Starfsfólk frá ESB- og EES-ríkjum

Persónuskilríki

Starfsfólk þarf að geta framvísað gildu vegabréfi eða persónuskilríkjum þar sem ríkisfangs er getið.

Ráðningarsamningur/ráðningarkjör

Gera skal skriflegan ráðningarsamning þegar starfsmaður er ráðinn. Í samningnum skulu vera upplýsingar m.a. um form ráðningar, upphafsdag, verkefni/stöðu, laun, vinnutíma, orlof og hvaða kjarasamningi skal fylgt.

Sömu reglur skulu gilda um starfsfólk frá ESB/EES-ríkjum og fyrir sænskt starfsfólk, samkvæmt jafnræðisreglu ESB. Sú regla bannar mismunun vegna þjóðernis hvað varðar ráðningu, laun og önnur starfs- og ráðningarkjör.

Vinnumarkaðstryggingar

Samkvæmt kjarasamningum er vinnuveitanda skylt að vera með ákveðnar vinnumarkaðstryggingar fyrir starfsmenn. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni Svenskt Näringslivs försäkringssida.

Almannatryggingar

ESB/EES-borgarar eiga rétt á almannatryggingum í því landi sem viðkomandi starfar í og greiðir almannatryggingagjald. Það á einnig við þó starfsmaðurinn sé búsettur í öðru ESB/EES-ríki. Fjölskyldumeðlimir starfsmanns, sem ekki stunda vinnu, eru einnig tryggðir í því landi sem viðkomandi starfar í. Tryggingin gildir frá fyrsta starfsdegi.

Skattareglur

Meginreglan í skattalöggjöfinni er að starfsmaður greiðir skatt í því landi sem hann starfar í. Ákveðnar undantekningar finnast innan ESB. Skatteverket veitir nánari upplýsingar.

Starfsmenn frá löndum utan ESB/EES

Ríkisborgarar landa utan ESB/EES sem vilja starfa í Svíþjóð verða að hafa atvinnuleyfi. Atvinnuleyfið skal vera greinlega áritað í vegabréf áður en viðkomandi kemur til Svíþjóðar. Arbetsförmedlingen veitir nánari upplýsingar.

Gagnlegar krækjur fyrir vinnuveitendur

Arbetsgivarverket

Svenskt näringsliv

Krækjur fyrir þá sem hyggjast stofna eigið fyrirtæki

Starta eget.se

Bolagsverket

Tillväxtverket

Skatteverket

Arbetsförmedlingens starta eget-sida

Almi Företagspartner


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.