Document Actions

Á döfinni

Nordic Look 2012
Dagsetning 15/05 2012 til 30/05 2012
Nordic Look fer fram dagana 15.-30. maí í Tallinn. Viðburðurinn er samstarfsverkefni upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Eistlandi, Miðstöðvar um byggingalist í Eistlandi og Skapandi Eistlands. Á tveggja vikna tímabili verður kastljósinu beint að byggingalist og borgarsvæðum og þeim vandamálum, úrlausnarefnum og tækifærum sem þeim tengjast.
Námstefna um ungt fólk sem hverfur frá námi
Dagsetning 22/05 2012 til 22/05 2017
 
Ráðstefna um kynferði og fjölmiðla í samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 23. maí 2012
Dagsetning 23/05 2012 til 23/12 2017
Í tengslum við jafnréttissamstarf ríkjanna er árlega haldin ráðstefna. Þema ársins í ár er kynferði og fjölmiðlar og verður ráðstefnan að þessu sinni haldin í Vilníus þann 23. maí.
Norræn námstefna um meginþróun á norðurskautssvæðinu
Dagsetning 29/05 2012 til 29/05 2012
Nýjar hugmyndir um hvernig má innleiða niðurstöður Megatrends verkefnisins í pólitíska stefnumörkun.
Norræn ráðstefna um neytendarannsóknir: Neysluvenjur skoðaðar
Dagsetning 30/05 2012 til 01/06 2012
Markmiðið með ráðstefnunni er að safna saman vísindamönnum af öllum sviðum til að skoða neysluvenjur: Hvernig eru neysluvenjur skilgreindar í ólíkum aðstæðum? Hvaða áhrif hefur síbreytilegur heimur á neysluvenjur og neytendur? Hverjar eru helstu fræðilegu tilgátur og aðferðir nú og í framtíðinni?
Fundur í norræna úrgangshópnum dagana 30.-31. maí 2012
Dagsetning 30/05 2012 til 31/05 2012
 
Nordic Seed Capital Summit 2012
Dagsetning 30/05 2012 til 30/05 2012
Nordic Seed Capital Summit er hluti af Nordic to Global Initiative, sem miðar að því að styðja þróun og alþjóðavæðingu ungra nýsköpunarfyrirtækja á Norðurlöndum.
Karlmennska á breytingatímum – karlar, jafnrétti og lífsgæði
Dagsetning 31/05 2012 til 01/06 2012
Nýir tímar, nýjar lausnir? Hvað er að vera strákur eða karl í dag? Hvernig er hægt að segja að konur og karlar séu karlmannlegar? Hvernig þróast hið „karlmannlega rými" í þjóðfélagi með auknu jafnrétti? Á ráðstefnunni verða kynntar nýjar rannsóknir á körlum og hvað telst karlmannlegt, kynferði og valdi, heilbrigði og lífsgæðum. Megináhersla ráðstefnunnar er á rannsóknir með áherslu á aukna samþættingu karlmennskurannsókna í aðrar gerðir rannsókna, sérstaklega hvað varðar jafnrétti og lífsgæði. Hluti ráðstefnunnar fjallar um stefnumörkun, þar sem fjallað verður um dæmi um þróunarvinnu og raundæmi um notkun karlmennskusjónarmiða.
10. norræna ráðstefnan um mataræði haldin í Reykjavík, dagana 3. - 5. júní, 2012.
Dagsetning 03/06 2012 til 05/06 2012
Markmiðið með ráðstefnunni er að fylgjast með stefnum og straumum og skapa umræðuvettvang fyrir næringarfræðinga og aðra fagaðila sem vinna að málefnum sem tengjast mataræði og heilsu. Áhersla verður á nýjustu rannsóknir á sviði matvæla, mataræðis og heilsu á Norðurlöndum, en einnig á alþjóðavettvangi.
Norræn nýsköpunarráðstefna
Dagsetning 04/06 2012 til 06/06 2012
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem vinna með símenntun, markmiðið er að skapa umræðu milli stefnumótenda, símenntunarstofnana og aðila vinnumarkaðarins. Á ráðstefnunni verður rætt um nýsköpun og sköpunarkraft í ljósi norræna velferðarlíkansins og frá sjónarhóli símenntunar. Umsjón: Norræna tengslanetið um fullorðinsfræðslu
Hunting and Protecting of Marine Mammals – A Clash of Cultures?
Dagsetning 04/06 2012 til 05/06 2012
Ráðstefna í Færeyjum 4.-5. júní
„Drop by Drop" verðlaunaathöfn og umræður
Dagsetning 05/06 2012 til 05/06 2012
Hans hátign krónprins Friðrik mun heiðra sigurvegara „Drop by Drop" samkeppninnar með nærveru sinni á verðlaunaathöfninni. Christian Friis Bach, þróunarráðherra Danmerkur flytur opnunarræðu við pallborðsumræðurnar: Hvernig getum við stuðlað að sjálfbærum lausnum á sívaxandi vatnsvandamálum heimsins? Kim Nøhr Skibsted, Group Vice President, Grundfos verður meðal þátttakenda í umræðum um sjálfbærar lausnir á vatnsnotkun og hvernig norrænu ríkin geta stuðlað að bættri vatnsnýtingu á alþjóðavettvangi.
Norræn strandmenningarráðstefna
Dagsetning 06/06 2012 til 08/06 2012
Markmiðið með ráðstefnunni er að efla þekkingu og meðvitund um menningarsögulegt fiskmeti . Það er stjórnarnefnd um strandmenningu sem hefur umsjón með ráðstefnunni.
Norræn námstefna um aðgerðir sem tengjast skammlífum loftslagsáhrifavöldum (SLCF)
Dagsetning 07/06 2012 til 08/06 2012
Námstefnan er haldin í kjölfar samþykktar umhverfisráðherra Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Álandseyja á fundi þeirra á Svalbarða dagana 26. og 27. mars 2012. Á fundinum ræddu ráðherrarnir um aðgerðir til draga úr áhrifum skammlífra loftslagsáhrifavalda eins og sóts og metan.
Húsnæði á landsbyggðinni - Norræn fræðsla og hvatning
Dagsetning 07/06 2012 til 07/06 2012
Húsnæði skiptir miklu máli þegar gera á sveitarfélög og héruð aðlaðandi. Einnig á dreifbýlum svæðum og í sveitum, skiptir þetta miklu máli. Fjármögnun ný- og endurbygginga, verndun stranda, landeigendur sem ekki búa á staðnum, tækifæri og áskoranir sem fylgja „sumarhúsaíbúum" eru dæmi um málefni sem oft er rætt um.
Ungmenni og jafnrétti – þekking og framkvæmd á Norðurlöndum
Dagsetning 07/06 2012 til 08/06 2012
Norræna æskulýðsnefndin og rannsóknastofnunin NOVA bjóða til norrænnar ráðstefnu um ungmenni og jafnrétti. Norrænu ríkin standa að miklu leyti andspænis sömu úrlausnarefnum á þessu sviði. Engu að síður er stefnan mismunandi milli landa.