Um formennsku Íslands 2004
Auðlindir Norðurlanda
Íslendingar munu undir yfirskriftinni „Auðlindir Norðurlanda“ leiða norrænt samstarf á árinu 2004. Yfirskriftin hefur víðtæka skírskotun. Með auðlindum er átt við samfélagsgerðina, félagslegar aðstæður, menningararfinn og náttúruauðlindir.
Frumauðlindin er þó fólkið sjálft og leiðarstef í öllum stefnumiðum er að virkja eigi og nýta betur mannauðinn til að efla samkeppnishæfni Norðurlanda á alþjóðavettvangi.
Náttúrugæði á Norðurlöndum eru mikil hvort heldur er í óspilltri og fjölbreyttri náttúru eða í nýtanlegum auðlindum. Þjóðskipulag hvílir á traustum lýðræðisgrunni, lýðræðið er virkt, félagsleg auðlegð er mikil, þjóðfélagsumræðan er frjó og starfsemi frjálsra félagasamtaka stendur með blóma.
Stjórnsýsla á Norðurlöndum er opin og gegnsæ og almennt njóta stofnanir samfélagsins trausts.
Norrænu ríkin hafa farið svipaðar leiðir til að tryggja góða menntun, vísindastarfsemi, hagnýtingu tækni, heilbrigðisþjónustu og félagslegt öryggi og hefur það skipað þeim í fremstu röð þjóða.
Sterk samkennd frændþjóðanna er til vitnis um ríka og fjölbreytta menningararfleifð sem þær eiga sameiginlega.
Samstarf og sambúð þeirra er góð og sama gildir um samskipti við grannþjóðirnar. Norrænu ríkin er, þó með mismunandi hætti sé, virkir þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi og samtökum sem hafa mótandi áhrif á þróunina á Norðurlöndum og grannsvæðum þeirra.
Auðlindir Norðurlanda eru því margþættar og saman mynda þær undirstöður velferðarinnar. Þær skýra sterka stöðu Norðurlanda í samfélagi þjóða. Nýta þarf hinar fjölbreyttu auðlindir til fullnustu, styrkja þannig velferðina og tryggja framsókn landanna á alþjóðavettvangi.
Leiðarstef áætlunarinnar eru lýðræði, menning og náttúra og eru þau samtvinnuð á margvíslegan hátt. Nýting mannauðs verður ekki skilin frá menningu, samfélagsgerð og lýðræðishefð. Þá eru tengsl náttúruauðlindanna við mannauðinn órjúfanleg því mannleg þekking og hugvit er forsenda þess að við getum nýtt náttúruna og skapað ný verðmæti.
Nánari upplýsingar:
Auðlindir Norðurlanda - dagskrá formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2004
