Um formennsku Noregs 2006
Ný Norðurlönd: Endurnýjun og samstarf við Norður-Evrópu
Gerðar eru þær kröfur til norræna samstarfsins að það endurnýist stöðugt og verði árangursríkara, þannig að það geti tekist á við áskoranir jafnt heima og heiman.
Hraðar breytingar í samfélaginu valda áskorunum sem fela í sér sjálfbæra þróun, félagsleg velferðarkerfi og umhverfisvernd.
Með hnattvæðingu eykst þörfin fyrir nýsköpun og verðmætasköpun sem byggir á þekkingu. Hnattvæðingin er einnig ögrun sem hvetur til verndunar norrænna tungumála og menningar. Á margan hátt eru það ný Norðurlönd sem takast á við þessar áskoranir.
Á þessum grunni, byggir norræna formennskuáætlunin þar sem megináhersla er lögð á eftirfarandi forgangsatriði:
- Samstarfið á norðursvæðum Evrópu.
- Norræna velferðarlíkanið
- Þekkingu, endurnýjun og verðmætasköpun
Nánari upplýsingar:
