Document Actions

Um formennsku Svíþjóðar 2008

Svíþjóð fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2008. Formennskuáætlun Svíþjóðar 2008 leggur áherslu á aamkeppnishæfni, loftslagsmál, sköpunarkraft og samhæfingu. Lögð er áhersla á samstarfssvið og áskoranir sem sænska formennskulandið telur að Norðurlöndin og Færeyjar, Grænland og Álandseyjar séu betur í stakk búin til að mæta í sameiningu .

Áætluninni er skipt í fjögur þemu: Samkeppnishæfni, loftslagsmál, sköpunarkraft og samhæfingu. Undir þessum þemum eru sett markmið og framkvæmdaáætlanir.

Einnig ætlar Svíþjóð sem formennskuland að halda áfram að vinna að málefnum sem fyrri formennskulönd hafa hrundið af stað. Það að til að mynda við um endurnýjunar- og nýsköpunarferlið í norræna samstarfslíkaninu, ekki síst hvað varðar stofnanir Norrænu ráðherranefndarinnar og aðrar stofnanir. Það á einnig við um áframhaldandi samþættingu jafnréttismála í Norrænu ráðherranefndinni.

Í áætluninni er einnig fjallað um nokkur þverfagleg svið, eins og áskoranir hnattvæðingarinnar, sjálfbær þróun, rannsóknir og nýsköpun, afnám hindrana til að auðvelda einstaklinum og fyrirtækjum að ferðast yfir landamæri, grannsvæðasamstarf og málefni sem tengjast börnum og unglingum.

Í skilgreindum undiráætlunum er gerð nánari grein fyrir forgangsatriðjum á fagsviði hverrar ráðherranefndar.

Nánari upplýsingar:

Vefsíða ríkisstjórnar Svíþjóðar um formennskuna

Dagskrá formennskuárs Svíþjóðar í Norrænu ráðherranefndinni 2008


 

Tengiliður

Lene Frees
Sími: +45 33 96 03 26
Tölvupóstur: