Formennskuáætlun Íslands 2009
Íslendingar stýra samstarfinu í Norrænu ráðheranefndinni 2009, yfirskrift formennskuáætlunarinnar er Norræni áttavitinn. Rauði þráðurinn í formennskuáætluninni er aukin áhersla á samstarf um rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði loftslags-, orku- og umhverfismála.
Áætlunin skiptis í fjóra undirkafla:
Norrænn aflvaki, Styrkur Norðurlanda, Svar við loftslagsvanda og Hnattvædd Norðurlönd.
Íslendingar munu hafa frumkvæði að fjölmörgum samstarfsverkefnum á formennskutímanum, þar á meðal:
- áhættukorti fyrir Norður-Atlantshafssvæðið, sem ryðja á brautina fyrir sameiginleg viðbrögð við umhverfisvá
- samstarfi þvert á atvinnugreinar til þess að efla frumkvöðlamenningu á öllum stigum menntakerfisins
- aðgerðir til að bæta menningar- og tungumálaskilning milli Norðurlandanna.
Meðal fjölda viðburða sem haldnir verða á Íslandi á formennskuárinu 2009 má nefna:
- ráðstefnur um nýsköpunarmenntun, gæðastjórnun í norrænum háskólum og nýsköpun í fiskveiðageiranum
- Hnattvæðingarráðstefnu þar sem fjallað verður sérstaklega um sérfræðiþekkingu norrænu ríkjanna og nýsköpun á sviði orku- og umhverfismála.
Norrænu forsætisráðherrarnir, leiðtogar norræns atvinnulífs og vísindamenn í fremstu röð á sviði hnattvæðingar og nýsköpunar munu taka þátt í Hnattvæðingarráðstefnunni. Hún verður haldin dagana 26. og 27. febrúar í Reykjavík.
Norðurlöndin vinna saman að undirbúningi loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember 2009. Mikilvægt er fyrir alþjóðasamfélagið að gerður verði nýr loftslagssamningur. Norðurlöndin leggja mikla áherslu á að það takist.
Í formála að formennskuáætluninni formennskuáætlunin skrifar Geir Haarde forsætisráðherra. „Í hnattvæddum heimi skiptir það okkur á Norðurlöndum miklu að búa að samstarfi sem byggir á sterkum grunni, á sameiginlegri sögu, menningu og grunngildum um réttlæti og það sem skiptir máli. Þessi gildi verðum við að vernda."
