Formennskuáætlun Svía byggir á norrænni samfélagsgerð sem hefur stuðlað að þróun hagvaxtar, velferðar og samstöðu í löndum okkar. Samfélagsgerð sem er nátengd mikilvægum gildum. Lýðræði, hreinskiptni, félagslegri samheldni, virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum, jafnrétti og frelsi einstaklingsins.
Svíar munu setja fjögur verkefni á oddinn í formennskuáætlun sinni. Átak gegn atvinnuleysi ungs fólks, þróun sjálfbærrar námuvinnslu, minnkun losunar menngandi efna út í andrúmsloftið og vinnustaðanám.
Þessar áherslur byggja á þeirri sannfæringu að norrænt samstarf, í auknum mæli, sé hægt að nýta til að takast á við þær samfélagslegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir.
Undir yfirskriftinni „Fleiri ungmenni í vinnu á Norðurlöndum“ verður gerður víðtækur samanburður á leiðum sem löndin hafa farið til að greiða fyrir atvinnuþátttöku ungs fólks. Atvinnuleysi ungs fólks er úrlausnarverkefni sem öll norrænu ríkin standa andspænis.
Í maí verður efnt til leiðtogafundur um vinnumál en auk forsætisráðherra ríkjanna og leiðtoga Færeyja, Grænlands og Álandseyja, taka aðrir aðilar úr þjóðfélaginu þátt í fundinum, þar á meðal æskulýðssamtök, aðilar vinnumarkaðarins, stjórnvöld, menntastofnanir og atvinnurekendur með margt ungt fólk í vinnu.
Tengslanet sérfræðinga, sem kallast Nordmin, verður sett á laggirnar, en í því verður unnið að hagsmunum norrænna námu- og auðlindageirans með það að markmiði að efla samkeppnishæfni námuvinnslunnar.
Auka aðgerðir til að draga úr losun skammlífra mengunarefna sem spilla andrúmsloftinu. Aðgerðirnar beinast sérstaklega að því að draga úr styrk sóts og ósons í andrúmsloftinu og miða þar með að því að hafa áhrif bæði á loftslag og loftgæði.
Brúa bilið milli menntunar og vinnu með vinnustaðanámi. Verkefnið nær bæði til ungs fólks og fullorðinna sem eiga að fá tækifæri til að komast í vinnustaðanám sem auðveldar þeim að komast út á vinnumarkað. Markmiðið er að þróa gæði vinnustaðanáms og þar með brúa bilið yfir á vinnumarkaðinn og auk þess að ná til nýrra nemendahópa.