Um formennsku í Norrænu ráðherranefndinni
Norðurlöndin fimm skiptast á að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni eitt ár í senn.
Norðurlöndin fimm fara með formennsku í eitt ár í senní Norræna ráðherranefndin.
Formennskan skiptist á milli landanna eftir sérstöku kerfi sem byrjar á Danmörku, þá kemur Finnland, Noregur, Svíþjóð og Ísland. Breyta má kerfinu með sérstakri ákvörðun ef sterk rök liggja fyrir. Sama land fer aldrei með formennsku í ráðherranefndinni og formennskuna i Norðurlandaráð.
Formennskulandið stýrir starfinu á samstarfssviðunum. Gerð er formennskuáætlun þar sem settar eru og kynntar pólitískar áherslur norræna ríkisstjórnarsamstarfsins næsta árið.
Forsætisráðherra kynnir formennskuáætlunina á árlegum fundi Norðurlandaráðs, þingið. Áætlunin er gefin út á prenti og í rafrænu formi.
Það land sem fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni fer einnig með formennsku funda norrænu forsætisráðherranna á árinu. Sama á við um fundi utanríkis- og varnarmálaráðherranna, sem alltaf eru haldnir án íhlutunar Norrænu ráðherranefndarinnar. Fulltrúar þess lands sem fer með formennsku hverju sinni fara einnig með formennsku í embættismannanefndum.
