Document Actions

Forsætisráðherrar Norðurlanda

Forsætisráðherrarnir bera endanlega ábyrgð á samstarfi norrænu ríkisstjórnanna. Fundir norrænu forsætisráðherranna eru haldnir tvisvar á ári. Auk þess hittast norrænu forsætisráðherrarnir við önnur tækifæri á ári hverju.

Samkvæmt Helsinkisáttmálanum Helsinkisáttmálinn en þar er fjallað um samstarf Norðurlandanna, eru það forsætisráðherrarnir sem bera ábyrgð á samstarfi ríkisstjórnanna.

Auk reglubundinna funda forsætisráðherranna, sem yfirleitt eru haldnir í júní og í tengslum við árlegt Norðurlandaráðsþing, sessionen, á haustin, hittast forsætisráðherrarnir núorðið á leiðtogafundum ESB. Forsætisráðherrar Íslands og Noregs taka þátt í þessum norrænu undirbúningsfundum.

Norrænu forsætisráðherrarnir hittast einnig á norrænu Globaliseringsforumet, en hún var haldin í fyrsta sinn á Riksgränsen í Svíþjóð.

Norrænu forsætisráðherrarnir hafa það einnig fyrir venju að hitta leiðtoga sjálfstjórnarsvæðanna í tengslum við Norðurlandaráðsþing á haustin.

Á Norðurlandaráðsþinginu gerir forsætisráðherra formennskulandsins grein fyrir megináherslum í ríkisstjórnarsamstarfinu og þeim áherslum sem lagðar verða í ríkisstjórnarsastarfi næsta árs. Formennska Hvert land fer með formennsku í eitt ár í senn og flyst hún á milli Norðurlandanna fimm.

Nýja norræna hnattvæðingarsamstarfið hófst á forsætisráðherrafundinum í Punkaharju í Finnlandi í júní 2007 hnattvæðingarsamstarfið, en þar er fjallað um þær áskoranir og þau tækifæri sem hnattvæddur heimur hefur í för með sér.


Einstaklingar

 Nafn   Starf   Þjóðerni 
Fredrik Reinfeldt Forsætisráðherra Svíi
Helle Thorning-Schmidt Forsætisráðherra Dani
Jens Stoltenberg Forsætisráðherra Norðmaður
Jyrki Katainen Forsætisráðherra Finni
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Forsætisráðherra Íslendingur

Tengiliður

Lene Frees
Sími: +45 33 96 03 26
Tölvupóstur: