Bloggfærsla 20/03/2013
Fyrstu þrjár vikurnar í starfi sem framkvæmdastjóri hafa einkennst af fundum með mönnum og málefnum, sem ég þekki og þekki ekki. Ég hef lagt áherslu á að kynnast nánustu samstarfsmönnum, fulltrúum í ráðherranefndinni og þeim umfangsmiklu málaflokkum sem unnið er með. Ég á enn langt í land í þessu ferli. Ég mun nú fjalla um nokkuð af því sem ég hef komist að.
Norrænt samstarf er afar breitt og fjölbreytt. Í gegnum það verður til mikil þekking og reynsla sem nýtist Norðurlöndunum í verkefnum, samstarfsvettvangi og stofnunum. Ég tel að við getum gert betur í að gera þessa þekkingu aðgengilega til að hægt sé að nýta hana í pólitískar og faglegar framkvæmdir og þannig öðlast norrænan ábata af því sem við leggjum til í formi starfsfólks og fjármagns. Þessar hugmyndir vil ég ræða frekar með samstarfsfólki og þeim sem skilgreina verkefnin.
Ég hef orðið var við mikinn áhuga á auknu þverfaglegu starfi. Norræna ráðherranefndin vinnur að mjög fjölbreyttum verkefnum á tiltölulega háu plani. Við höfum því tækifæri til að hvetja til slíks samstarfs þvert á fagleg mörk. Það krefst þess að starfsfólk og stjórnendur hugsi sem ein heild og fái tækifæri til að vinna þverfaglega.
Að vinna með stjórnendum og skapa sameiginlegan stjórnunarvettvang verður að sjálfsögðu mikilvægt fyrir mig. Með sameiginlegum skilningi á væntingum, gildum og stjórnunarreglum getum við í samstarfi við starfsfólkið þróað stjórnunina og þar með stofnunina.
Mikið og gott starf hefur verið unnið undanfarin ár við að bæta kerfisbundið hvernig unnið er með stjórnun fjárhagsáætlana, verkefna og stofnana. Ég þarf að fara í gegnum verkferla og uppbyggingu með það að markmiði að ég geti lagt mitt af mörkum til þess að við notum það fjármagn sem okkur er falið á sem bestan hátt og tryggjum árangur af því mikla starfi sem unnið er. Undirstaða þessa starfs verða skýrslur sem þegar hafa verið gerðar á ýmsum sviðum. Ég er viss um að hægt er að einfalda, endurnýja og bæta starfið í framtíðinni. Fyrstu vikur mínar hafa veitt mér innblástur til að takast á við þetta starf í samstarfi við hæft starfsfólk sem sér tækifærin í norrænu samstarfi.