Bloggfærsla 22/05/13
Í dag hittast leiðtogar ESB til að ræða verðmætasköpun í Evrópu í skuldavanda. Eitt af aðalumræðuefnunum er skattaundanskot og baráttan gegn svonefndum „skattaskjólum“. Á þessu sviði getur Evrópa litið til Norðurlanda sem eru fremst í heiminum í baráttunni gegn skattaundanskotum.
„Skattaskjól“ er heitið á löndum þar sem ríkustu einstaklingar heims geyma fjármuni sína til þess að komast hjá skattlagningu í heimalandinu. Norðurlönd hafa síðan árið 2006 eflt starf sitt gegn skattaskjólum með árangri sem vekur eftirtekt. Hingað til hafa norrænar samningaviðræður haft í för með sér að náðst hafa samningar um skipti á upplýsingum um skattamál við meira en 40 lönd.
Samningarnir hafa haft í för með sér að löndin hafa endurheimt milljarða króna sem ekki hafa verið gefnar upp til skatts í viðkomandi löndum. Að auki hafa einstaklingar og fyrirtæki í Noregi, Svíþjóð og Danmörku getað gefið upp til skatts fjármagn sem áður hefur verið svikið undan skatti, án refsingar. Þegar hefur mörg hundruð milljónum verið skilað og trúlega munu upphæðirnar hækka til muna á næstu árum.
Greiningar sýna að upplýsingaskiptasamningarnir hafa haft í för með sér aukið fjárstreymi til norrænu ríkjanna frá útlöndum þar sem fjárfest er eða sparað. Stærsti ávinningurinn fyrir ríkissjóði er einnig forvarnargildi samninganna. Niðurstaða þessa markvissa samstarfs er að Norðurlönd geta í framtíðinni komist hjá milljarða undanskotum.
Norska líkanið sýnir að það er hægt að berjast gegn skattaundanskotum þegar stjórnvöld vinna saman þvert á landamæri. Lausnirnar finnast þegar skattayfirvöld í þjóðlöndunum líta ekki á hvert annað sem keppinauta og ekki er hugsað um að hagnast á annarra þjóða tapi. Gagnkvæmt traust hefur gert það mögulegt að stofna alþjóðlegan vinnuhóp sem berst gegn skattaundanskotum (NAIS) sem í eru fulltrúar skattayfirvalda í norrænu ríkjunum fimm. Norska líkanið gegn skattaundanskotum hefur vakið alþjóðlega athygli og áhuga hjá OECD.
Samstarf Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands, Íslands auk Færeyja, Grænlands og Álandseyja er einstakt í heimunum og baráttan gegn skattaskjólum sýnir að samstarfið nær árangri sem er einnig einstakur.
Dagfinn Høybråten