Bloggfærsla 10/03/2013
Nú er tími tækifæranna á Norðurlöndum. Þróttmikil þróun á sér stað á mörgum sviðum norræns samstarfs. Margir sækja innblástur og þekkingu til Norðurlandanna nú þegar efnahagslíf heimsins á í vök að verjast. Áhugaverðari tíma til að koma inn í samstarfið er varla hægt að ímynda sér, með það verkefni að stuðla að áframhaldandi þróun þess. Sem nýr framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar stend ég auðmjúkur andspænis þessu stóra verkefni, en einnig stoltur og ánægður með það bú sem ég tek við.
Í samningi mínum stendur að ég eigi að stuðla að þróun norræns samstarfs, auka skilvirkni þess og gera það hnitmiðaðra. Fyrstu vikuna í starfi hef ég notað til að kynnast betur einstaklingum og verkefnum. Margt er vel gert í norrænu samstarfi bæði í og utan Norrænu ráðherranefndarinnar. Af því eigum við að draga lærdóm. Það sama á við um það sem ekki gengur eins vel. Hvers vegna taka hlutirnir tíma? Hvernig getum við orðið enn betri í að forgangsraða því sem veitir norrænan ábata?
Við á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar eigum að þjóna stjórnmálamönnum sem skilgreina verkefnin, og þar eru norrænu ríkisstjórnirnar og sjálfstjórnarsvæðin mikilvægir aðilar. Mín eigin reynsla sem ráðherra, þingmaður og embættismaður er sú að norrænt samstarf virkar best þegar það fær pólitískan kraft í formi skýrra markmiða og vilja til framkvæmdar.
Starf okkar er að sjá til þess að þetta geti orðið með því að koma með góðar tillögur og veita greinagóðar upplýsingar til ákvarðanatöku - og að sjá til þess að ákvarðanir verði rétt og skipulega framkvæmdar. Í alþjóðlegum samtökum er auðveldast að taka ekki ákvarðanir. Örlítið erfiðara er að taka ákvörðun. Það erfiðasta er að framkvæma.
Það er árangurinn sem telur. Ég vil að við verðum samtök sem þyrstir í árangur. Í vor mun ég heimsækja þá stjórnmálamenn og stofnanir á Norðurlöndum sem skilgreina verkefni okkar til að ræða hvernig við getum í sameiningu nýtt möguleikana í samstarfinu í framtíðinni.
Dagfinn Høybråten framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.