Document Actions

Tími tækifæranna fyrir Norðurlönd

Bloggfærsla 26/04/2013

Í þessari viku heimsótti ég tvær norrænar höfuðborgir til þess að ræða við ríkisstjórnir um þau verkefni sem mér hafa verið falin. Eftir þessa fundi með forsætis-, utanríkis- og samstarfsráðherrunum er ég sannfærður um að núna er tími tækifæranna fyrir Norðurlönd til þessa að kynna sig sem samstarfssvæði og vörumerki. Það er skýr pólitískur vilji í höfuðborgunum til þess að leggja áherslu á allt það sem getur aukið norrænt notagildi. Á sumum sviðum eiga lítil lönd betri möguleika á því að ná góðum árangri og gæðum með því að vinna saman en hvert fyrir sig. Við erum þegar að nýta möguleikana á mörgum sviðum, en tækifærin eru enn fleiri. Þess vegna hafa forsætisráðherrarnir hvatt til enn frekara samstarfs til að mynda á heilbrigðissviðinu um sjaldgæfa sjúkdóma og sérhæfðar meðferðir.

Norrænar merkjavörur sigla hraðbyri á alþjóðamarkaði. Þess vegna taka ríkisstjórnirnar höndum saman um grænan hagvöxt, nýsköpun og tækni. Einnig eru nú möguleikar á norrænu samstarfi sem getur stuðlað að auknum pólitískum áhrifum út á við.

Mínar tillögur til forsætisráðherranna Stoltenberg og Katainen voru: Norræna ráðherranefndin á að reikna með að skrifstofa nefndarinnar vinni faglega, gefi fagleg ráð, taki frumkvæði, bendi á sameiginlega norræn tækifæri og vinni að framkvæmd ákvarðana sem teknar eru í sameiningu af norrænu ríkjunum. Við viljum stjórnendur sem vilja efla pólitíska virkni samstarfsins, hafa skýr markmið og taka ákvarðanir. Saman getum við gripið tækifærið sem við öll teljum að blasi við Norðurlöndum.

Tengiliður

Bodil Tingsby
Sími: +45 33 96 03 57
Tölvupóstur:

Dagfinn Høybråten

 

Fréttir