Dagfinn Høybråten
Dagfinn Høybråten tók við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar þann 4. mars 2013. Høybråten tekur við stöðunni og segist leggja metnað í að þróa og efla norræna samstarfið:

„Möguleikarnir í norræna samstarfinu eru miklu fleiri en þeir sem við nýtum í dag. Ég hlakka til, sem framkvæmdastjóri, að leggja mitt af mörkum til að nýta þessa möguleika", sagði Høybråten þegar hann tók við starfinu.
Dagfinn Høybråten hefur verið stjórnmálamaður í rúmlega 30 ár og sat í 7 ár í ráðherranefndinni sem heilbrigðisráðherra, atvinnumálaráðherra og félagsmálaráðherra fyrir Kristilega þjóðarflokkinn . Eftir það var hann forseti Norðurlandaráðs 2007 - 2008. Auk þess hefur hann átt farsælan feril sem embættismaður og meðal annars framkvæmdastjóri norsku tryggingastofnunarinnar Trygdeetaten frá 1997 til 2004.