Document Actions

Dagfinn Høybråten: Norðurlönd eru einn af þráðunum í lífi mínu

Eftir að hafa verið Norðurlandasinni allt sitt líf er Dagfinn Høybråten loks kominn í stöðu í hjarta norræns samstarfs. „Ég hlakka til að taka þátt í að þróa og efla norrænt samstarf, Norðurlönd eiga sterka sögulega og menningarlega arfleifð. Við höfum góða reynslu af samstarfi. En möguleikarnir eru miklu meiri. Sem framkvæmdastjóri hlakka ég til að stuðla að því að tækfærin veri nýtt.

Norræna líkanið er gimsteinn sem við verðum að gæta vel. Það er talað um okkur með aðdáun utan Norðurlandanna, nú síðast í forsíðugrein í The Economist í febrúar. Í heimi kreppu og efnahagslegra þrenginga líta margir til reynslu norrænu ríkjanna.  Ég vil stuðla að því að við höldum áfram að efla samkenndina", segir Høybråten.

Norðurlönd hafa alltaf verið rauður þráður í lífi Dagfinn Høybråten. Sem barn hlustaði hann á móður sína segja frá því þegar hún sem unglingur var send í «fitun» til Danmerkur. Eftir stríð var matarskortur í Noregi, en þökk sé örlátum Dana var móðir Dagfinns ein af mörgum unglingum sem fengu tækifæri til að borða sig sadda. Samstaða norrænu þjóðanna á eftirstríðsárunum hafði áhrif á Høybråten sem fór á námstefnu hjá Norræna félaginu þegar sem táningur.

Síðan þá hafa allar hans gjörðir sem stjórnmálamaður og embættismaður falið í sér norræna vídd. Høybråten sat í ráðherranefndinni í 7 ár, sem heilbrigðis-, atvinnu- og félagsmálaráðherra, Síðan varð hann forseti Norðurlandaráðs 2007-2008.

Virkur í samstarfi

Þátttaka Høybråten byggir á því að hann sér hvernig flestir hafa það betra þökk sé samstarfi þvert á landamæri.

„Norrænt samstarf hefur áhrif á daglegt líf flestra. Framtíðarsýn Helsinkisáttmálans um jöfn kjör norrænna borgara á ennþá rétt á sér. Við höfum vanist árangrinum; frjálsri för án vegabréfs, frjálsu flæði vinnuafls, samræmdri löggjöf á mörgum sviðum. Almannatryggingasáttmálinn er ekki síst nokkuð sem tryggir íbúum Norðurlandanna réttindi og jöfn kjör. En við höfum möguleika á að gera meira í sameiningu. Í krafti þess sem við eigum saman getum við gert meira fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Hægt er að fjarlægja illa rökstuddan mismun. Aukin sérhæfing landanna getur haft í för með sér betri lausnir og aukna skilvirkni. Pólitískt samræming getur aukið áhrif okkar á alþjóðavettvangi".

Við getum framkvæmt það sem talað er um í hátíðarræðum

Tilboðið um starf framkvæmdastjóra barst á heppilegum tíma í lífi Dagfinn Høybråten. Í fyrsta sinn í 30 ár verður húsið á býlinu á Nesodden fyrir utan Ósló barnlaust. Að auki hafði hann ákveðið að hætta á Stórþinginu. Hann var tilbúinn fyrir nýjar áskoranir og starf á alþjóðavettvangi kom vel til greina.

„Starfið hittir beint í mark hjá Norðurlandasinna eins og mér. Við getum í sameiningu framkvæmt það sem talað er um í hátíðarræðunum og þar verður mitt verkefni sem framkvæmdastjóra að benda á tækifærin".

Høybråten telur Norðurlöndin vera í mjög virkum fasa. Varnarsamstarfið er eitt dæmi. Með praktísku samstarfi hafa norrænu ríkin náð að skapa það sem NATO kallar «smart defence», praktíska nýtingu á herafla hvers annars. Hann telur að Norðurlönd geti unnið á jafn virkan hátt að öðrum málaflokkum.

„Mín reynsla er sú að ef pólitískur vilji er fyrir hendi og við notum þau verkfæri sem felast í samstarfinu, þá getum við áorkað miklu. Tökum samstarf um viðbúnað við heilbrigðisvá sem dæmi. Með því að nýta okkur forskot hvers og eins með praktískum og raunverulegum samningum getum við í sameiningu tekist á við ógnir. Norrænu ríkin eru smá og við getum ekki verið «fremst» í öllu, en saman geta Norðurlöndin verið «fremst» í heilbrigðismálum. Þar er til mikils að vinna fyrir norrænt samstarf".

Vill þjóna ráðherranefndinni og norrænu ríkjunum

Dagfinn Høybråten hefur langa reynslu sem stjórnmálamaður og embættismaður. Hann hefur stjórnað norsku tryggingastofnuninni með 8000 starfsmönnum og verið sveitarstjóri eins stærsta sveitarfélags Noregs með 1400 starfsmenn. Því telur hann að breytingin úr því að vera stjórnmálamaður í fremstu röð í embættismann ætti að verða auðveld.

„ Framkvæmdastjórastaðan er á mörkum stjórnsýslu og stjórmála og ég hef trú á því að reynsla mín á báðum sviðum sé kostur. Ég veit hvernig pólitíska ferlið er og ég veit hvernig á að láta hlutina gerast. En það eru stjórnmálamennirnir sem bera ábyrgð á að skilgreina verkefnin. Virðing fyrir stjórnmálamönnum og stjórnmálum er mjög mikilvæg fyrir mig sem embættismann.

Ég á ekki að vera «fánaberi» pólitískrar framtíðarsýnar heldur fylgja óskum norrænna ráðherra. Ráðherranefndin hefur hafið umræður um framtíðarsýn samstarfsins. Jafnframt hefur ráðið sagt að hluti af starfi mínu sem framkvæmdastjóri sé að stuðla að aukinni skilvirkni, þróa og gera norrænt samstarf markvissara. Það er pólitískur vilji sem ég og starfsfólk skrifstofunnar viljum gjarnan taka þátt í að framkvæma".

Í Noregi er hann þekktur sem lausnamiðaður stjórnmálamaður sem vinnur stefnumiðað og markvisst. Það eru eiginleikar sem hann tekur með sér á skrifstofuna í höfuðborg Danmerkur. Það fyrsta sem Høybråten mun gera í sínu nýja starfi er að hlusta á ráðherranefndina og starfsmenn sína til þess að finna þróunar- og umbótatækifæri.

„Ég er með margar spurningar um einföldun ferla og málsmeðferða til þess að auka nytsemi þess sem við gerum í norrænu samstarfi".

Kvíðir örlítið fyrsta vinnudegi

Norska dagblaðið Dagbladet lýsti Dagfinn Høybråten sem manninum með «stáltaugarnar», framkvæmdastjórinn verðandi ljóstrar því upp að hann er spenntur og eftirvæntingarfullur eftir þeim mörgum breytingum sem framundan eru.

„Ekki síst er það mikil breyting að flytja frá Noregi. Jafnvel þó ég hafi unnið mikið á alþjóðavettvangi undanfarin ár, bæði í norrænu samstarfi og sem formaður bólusetningarsamstarfsins GAVI, hef ég ekki búið utan Noregs nema hvað ég stundaði nám í Bandaríkjunum í eitt ár. Ég er undirbúinn undir að margt komi á óvart, og ég er spenntur að sjá hvaða «stjórnsýsluhindrunum» ég mun standa andspænis..."

Þrátt fyrir langa reynslu af mikilvægum störfum getur hann enn orðið taugaóstyrkur.

„Ég verð örugglega svolítið taugaóstyrkur fyrsta vinnudaginn. Að minnsta kosti mjög spenntur. En ég held það skerpi skilningarvitin að vera svolítið taugaóstyrkur. Það verður til þess að maður leggur sig meira fram".

Sem ferðamaður hefur Høybråten reynt að það er gott vera Norðmaður í Danmörku og hann hlakkar til að upplifa Kaupmannahöfn og vonandi eignast nokkra danska vini.

„Börnin gáfu okkur gjafakort í Konunglega leikhúsið í jólagjöf. Borgarlífið verður nýbreytni fyrir konuna mína og mig.  Ég hlakka til að kynnast danskri menningu og verða hluti af nýrri heild. Það verður spennandi", segir verðandi framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar að lokum.