Halldór Ásgrímsson
Halldór Ásgrímsson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands tók við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar þann 1. janúar 2007. Halldór Ásgrímsson vill færa norrænt samstarf nær almenningi og daglegu lífi.
Halldór leggur á það áherslu að Norræna ráðherranefndin efli starf sitt, jafn í austur sem vestur. Leggja á áherslu á Vestur-Norðurlönd og Norðurskautið, en jafnfram á Eystrasaltssvæðið.
Halldór Ásgrímsson hefur verið stjórnmálamaður í 32 ár og lauk stjórnmálaferli sínum sem forsætisráðherra Íslands. Hann hefur verið fulltrúi á öllum Norðurlandaráðsþingum sem haldin hafa verið síðustu 30 árin, ef undan er skilið árið 1979. Hann hefur einnig verið bæði sjávarútvegsráðherra og utanríkisráðherra. Hann er fylgjandi starfi ESB og hefur áhuga á nánara samstarfi Norðurlandanna og ESB.
