Heimurinn tekur sífelldum breytingum og hnattræn úrlausnarefni gera nýjar kröfur til norrænu ríkjanna. Á sumum sviðum geta Norðurlöndin náð meiri árangri saman en sitt í hvoru lagi, og sum svið þarf að efla til þess að hægt sé að skapa nýtt norrænt líkan sem íbúarnir vilja taka þátt í að þróa. Nú beinist stór hluti samstarfsins að því að takast á við hnattræn úrlausnarefni.
Norðurlöndin eiga með sér einstakt og langvarandi samstarf og hafa í gegnum tíðina verið samkeppnishæf og tekið þátt á alþjóðavettvangi. Norðurlönd hafa á ýmsan hátt verið fyrirmynd annarra heimshluta.
Norðurlöndin eru oft nefnd í sömu andrá og norræna líkanið, sem hefur verið árangursríkt og skilað góðum árangri á mörgum sviðum. Norðurlöndin einkennast af velferðarkerfi sínu þar sem sterk tengsl eru milli velferðar- og atvinnustefnu.
Árið 2007 hittust norrænu forsætisráðherrarnir í Punkaharju við finnsku vötnin og skógana, ekki langt frá grönnum Norðurlandanna í austri. Niðurstaða fundarins var að sett var af stað norrænt átak til þess að takast á við hnattræn úrlausnarefni - Fréttatilkynning frá fundinum í Punkaharju. Markmið hnattvæðingarstarfsins hefur síðan verið að þróa norræna líkanið, auka samkeppnishæfni, og kynna og auka sýnileika Norðurlandanna sem forystusvæðis.
Verið er að vinna fjölmörg verkefni sem miða að því að takast á við hnattræn úrlausnarefni á vegum norræns samstarfs. dæmis má nefna að Norðurlöndin takast nú á við úrlausnarefni á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála á alþjóðavettvangi, ekki síst með þróun sjálfbærra orkukerfa sem eru einstök í sinni röð, og áherslu á bygginga- og samgöngugeira. Menning er ein af undirstöðum Norðurlandanna og norræn menning fær nú aukna athygli og er sýnd víða um heim, þar er meðal annars vakin athygli á skapandi greinum. Ýtt hefur verið úr vör, stærsta átaki nokkru sinni hvað varðar rannsóknir og nýsköpun. Jafnframt er aukin áhersla lögð á afnám stjórnsýsluhindrana, en þær takmarka hreyfanleika einstaklinga og fyrirtækja milli landa. Að auki er lögð áhersla á nýjar, nýstárlegar aðgerðir til að bæta heilsu og til að bæta kjör jaðarhópa í atvinnulífinu.
Norrænu forsætisráðherrarninr hitta árlega fulltrúa úr ýmsum samfélagshópum á hnattvæðingarráðstefnu. Ráðstefnan er liður í aðgerðum forsætisráðherranna til þess að takast á við hnattræn úrlausnarefni. Þar koma fram nýjar hugmyndir sem breyta má i raunveruleg verkefni til að efla norrænt samstarf enn frekar - lesa "Yfirlýsingu forsætisráðherranna". Í aðdraganda ráðstefnunnar er ár hvert unnin svokölluð "hnattvæðingarvog" sem veitir upplýsingar sem auðvelda ákvarðanatöku.
Finnar fara með formennsku í ríkisstjórnasamstarfinu í Norrænu ráðherranefndinni árið 2010 og forsætisráðherra Finnlands er gestgjafi fundarins í ár. Þáttur í því er að efla græna ímynd Norðurlanda á alþjóðavettvangi. Þátttöku finnsku ríkisstjórnarinnar í hnattvæðingarstarfinu er lýst í formennskuáætlun fyrir árið 2011.
Nánari lýsing á öllum hnattvæiingarverkefnunum er í kaflanum ”verkefni í gangi”. Skýrslur um framgang starfsins eru gerðar og kynntar forsætisráðherrunum tvisvar á ári. Hægt er að lesa allar skýrslur undir liðnum ”skýrslur samstarfsráðherranna um hnattvæðingarferlið”. Að auki eru nýjar upplýsingar teknar saman eftir því hvernig einstök verkefni þróast.
Vorið 2012 var gerð samantekt á áhrifum hnattvæðingarverkefnisins, sjá Hver voru áhrif hnattvæðingarverkefnisins?